Íslenski boltinn

Leiknismenn sjóveikir | Frestað til 19.15

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leiknismenn komast til Eyja.
Leiknismenn komast til Eyja. vísir/stefán
Leikur ÍBV og Leiknis fer fram í kvöld en það hefur aftur þurft að seinka leiknum. Nú til 19.15 en þá mun leikurinn líka fara fram.

Á tímabili var óvíst hvort leikurinn færi fram en Herjólfur siglir ekki frá Landeyjahöfn vegna slæms sjólags við höfnina. Ekki er heldur flugfært til Vestmannaeyja í dag.

Nú er ljóst að Leiknismenn fara með farþegabátnum Víkingi frá Landeyjahöfn og  fóru þeir upp úr 16.00 frá Landeyjahöfn.

Af þeim sökum hefur leiknum verið seinkað í tvígang. Fyrst þar sem þeir komu seint og svo af því leikmenn þurftu að jafna sig.

Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×