Lífið

Segir Maríu hafa verið langbesta í Norðurlandapartýinu

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
María söng í partýinu og Ásgeir, einn höfunda Unbroken, spilaði með á gítar.
María söng í partýinu og Ásgeir, einn höfunda Unbroken, spilaði með á gítar. Vísir
María steig á svið í sameiginlegum hátíðarhöldum keppenda Norðurlandanna í Eurovision fyrir helgi og söng bæði Unbroken og sitt uppáhalds Eurovision lag, Euphoria.

Keppendur hinna Norðurlandanna fluttu að sjálfsögðu sín lög líka en Felix Bergsson segir Maríu hafa verið langbesta í partýinu. Hann kom í viðtal í Bítið í morgun. Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér að ofan.

Sjá einnig: Viðtal við Maríu eftir rauða dregilinn

Þrjú lönd langefst

„Það eru flestir sammála um að Svíar, Ástralir eða Ítalir muni vinna en Ísland, Rússland, Noregur og Eistland eru nefnd í humátt þar á eftir.

María var langbest í Norðurlanda partýinu en ég held að það verði eitthvert þessara þriggja landa sem muni bera sigur úr býtum,“ sagði Felix.

María söng Unbroken fyrir gesti í Norðurlandateitinu en eins og heyra má á myndbandinu hér að neðan þekkti hópurinn lagið og tók undir með Maríu. Það þekktu síðan að sjálfsögðu allir Euphoria sem söngkonan Loreen kom, sá og sigraði með árið 2012.

Ísland í tíunda sæti veðbanka

Hann telur að Ísland eigi mjög góða möguleika á því að enda í einu af efstu tíu sætunum. Hann bendir á að það sé mjög langt síðan Ísland hafi verið í einu af tíu efstu sætunum hjá veðbönkum.

Eins og staðan er núna virðist Ísland vera einmitt í því tíunda, í það minnsta á vefsíðu Eurovision World.

Hreyfing hefur verið á veðbönkunum síðastliðna viku en Frakkland rauk upp listann eftir æfingu þeirra í gær og Rússland þaut upp í efstu fimm sætin eftir fyrstu æfingu sína í síðustu viku.


Tengdar fréttir

María með lukkugrip

"Ég held að gripurinn muni pottþétt koma til með að veita mér mikla lukku.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×