Formúla 1

Hakkinen: Ekki viss um hvort Ferrari ætti að halda Raikkonen

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Raikkonen fagnar öðru sæti í Barein.
Raikkonen fagnar öðru sæti í Barein. Vísir/Getty
Tvöfaldi heimsmeistarinn Mika Hakkinen segir Ferrari eiga erfiða ákvörðun fyrir höndum. Ferrari þarf að ákveða hvort það vill framlengja samning Kimi Raikkonen.

Hakkinen segir að landi sinn þurfi að sýna meiri stöðugleika, hann þurfi að komast oftar á verðlaunapall til að vinna sér inn sæti hjá liðinu á næsta ári.

Liðsfélagi Raikkonen, Sebastian Vettel hefur átt töluvert betra tímabil hingað til, hann hefur unnið eina keppni og verið á verðlaunapalli í öllum nema einni. Raikkonen hefur aðeins einu sinni komist á verðlaunapall á tímabilinu.

„Þegar hingað komið er ég ekki viss um hvort Ferrari ætti að halda Raikkonen. Það er erfitt að segja hvort það er rétt eða röng ákvörðun fyrir Ferrari,“ skrifaði Hakkinen í grein sína í Hermes.

„Við vitum allt um hraða og hæfileika Kimi. Eins reynslumikill ökumaður og hann ætti að sýna það stöðugt eins og við sáum í Barein,“ bætti Hakkinen við.

Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segir ekkert liggja á, hann telur að Raikkonen geti blómstrað undir þrýstingi vegna hugsanlegrar framlengingar á samningi.

„Ef þú spyrð mig núna hvort hann eigi nýjan samning skilið þá myndi ég svara játandi. En ég vil halda honum vakandi. Kimi er bestur þegar hann er undir smá pressu. Það er sálfræðinálgunin sem hentar honum best,“ sagði Arrivabene.

Raikkonen þarf að halda áfram að aka eins og hann gerði í Barein til að vea öruggur í sæti sínu hjá Ferrari. Spurningin er bara hvort Ísmaðurinn skili sínu.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Barátta í Barein

Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel.

Hamilton fyrstur í mark í Barein

Lewis Hamilton á Mercedes vann Formúlu 1 keppnina í Barein í dag. Hamilton vann sína þriðju keppni á tímabilinu. Kimi Raikkonen á Ferrari varð annar og Nico Rosberg á Mercedes þriðji.

Ferrari og Mercedes fljótastir á föstudegi

Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins, liðsfélagi hans, Sebastian Vettel varð annar. Nico Rosberg á Merceds var fljótastur á seinni æfingunni og liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð annar.

Lauda: Þetta mun allt velta á ræsingunni á morgun

Lewis Hamilton er með ráspól á morgun eftir tímatökuna í dag. Niki Lauda telur að ræsingin geti skipt öllu fyrir framvindu keppninnar á morgun. Keppnin verður gríðarlega spennandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×