Tíundi sigur meistaranna í röð | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 11. apríl 2015 12:00 Tim Duncan fagnar sigrinum í nótt. vísir/afp
NBA-meistararnir í San Antonio Spurs unnu sinn tíunda leik í röð í NBA-körfuboltanum í nótt, en meistararnir unnu Houston Rockets með minnsta mun, 104-103. Með sigrinum tryggði San Antonio sér sæti í úrslitakeppninni. Tim Duncan átti afar góðan leik fyrir San Antonio en hann skoraði 29 stig og tók tíu fráköst. Josh Smith gerði 20 stig fyrir Houston, en Dwight Howard tók fjórtán fráköst. Bæði lið hafa tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Danilo Gallinari skoraði 47 stig fyrir Denver sem vann Dallas í mögnuðum leik, 144-143. Tvíframlengja þurfti leikinn, en að lokum vann Dallas með einu stigi eins og fyrr segir. Hjá Dallas var Þjóðverjinn Dirk Nowitzki atkvæðamestur með 25 stig. Dallas er öruggt í úrslitakeppnina, en ekki Denver. Russell Westbrook heldur áfram að spila vel fyrir Oklahoma en hann skoraði 27 stig og tók tíu fráköst í 13 stiga sigri liðsins á Sacramento í nótt, 116-103. Ben McLemore gerði 20 stig fyrir Sacramento. New York Knicks tapaði sínum 64. leik í nótt þegar liðið tapaði gegn Milwaukee, 99-91. Afleitur vetur hjá Knicks. Langston Galloway gerði 20 stig fyrir New York, en Giannis Antetokounmpo gerði 23 stig fyrir Milwaukee og tók níu fráköst. Öll úrslit næturinnar og nokkur skemmtileg myndbönd má sjá hér að neðan.Úrslit næturinnar: Toronto - Orlando 101-99 Charlotte - Atlanta 80-104 Boston - Cleveland 99-90 Indiana - Detroit 107-103 Washington - Brooklyn 80-117 Milwaukee - New York 99-91 Phoenix - New Orleans 75-90 San Antonio - Houston 104-103 Sacramento - Oklahoma City 103-116 Dallas - Denver 144-143 Memphis - Utah 89-88 Minnesota - LA Lakers 98-10647 stig frá Gallinari í framlengdum leik: Ein trollatroðsla: Vá!:
NBA Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Fótbolti „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Körfubolti Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Enski boltinn Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risa leikir strax eftir landsleikjahlé Sport Fleiri fréttir „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Sjá meira