Bonneau er sannarlega á heimavelli í Ljónagryfjunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2015 13:00 Stefan Bonneau. Vísir/Valli
Stefan Bonneau, bandaríski leikstjórnandi Njarðvíkinga, verður í sviðsljósinu með félögum sínum í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti KR í fjórða leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Dominos-deildar karla. Njarðvíkingar hafa unnið fjóra fyrstu heimaleiki sína í úrslitakeppninni í ár og þar vegur þungt frábær frammistaða Stefan Bonneau. Stefan Bonneau hefur skorað 36,3 stig, tekið 6,0 fráköst og gefið 6,3 stoðsendingar að meðaltali í heimaleikjum Njarðvíkurliðsins í úrslitakeppninni en hann hefur skorað 30 stig eða meira í öllum fjórum leikjunum. Bonneau er "bara" með 23,0 stig og 4,0 stoðsendingar að meðaltali í útileikjunum en Njarðvíkurliðið hefur tapað þeim öllum, tveimur á móti Stjörnunni í átta liða úrslitunum og tveimur á móti KR í undanúrslitunum. KR er 2-1 yfir í einvíginu eftir sigra í báðum leikjum liðanna í DHL-höllinni en Njarðvík vann heimaleikinn sinn á eftirminnilegri þriggja stiga körfu Stefan Bonneau, sekúndu fyrir leikslok. Stefan Bonneau hefur verið sérstaklega duglegur að koma sér á vítalínuna og nýta vítin sín í heimaleikjunum. Hann er með 93 prósent vítanýtingu í Ljónagryfjunni í úrslitakeppninni og hann er að fá tvöfalt fleiri víti í heimaleikjunum en í útileikjunum. Fjórði leikur Njarðvíkur og KR hefst klukkan 19.15 í Ljónagryfjunni í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.Heimaleikir Stefan Bonneau í úrslitakeppninni 2015:19. mars á móti Stjörnunni - 88-82 sigur 30 stig, 7 stoðsendingar, 1 þristur, hitti úr 13 af 13 vítum26. mars á móti Stjörnunni - 92-86 sigur 45 stig, 10 stoðsendingar, 5 þristar, hitti úr 14 af 14 vítum2. apríl á móti Stjörnunni - 92-73 sigur 36 stig, 3 stoðsendingar, 4 þristar, hitti úr 10 af 11 vítum9. apríl á móti Stjörnunni - 85-84 sigur 34 stig, 5 stoðsendingar, 6 þristar, hitti úr 4 af 6 vítum
Dominos-deild karla Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira