Sögð hafa brennt Kóraninn og barin til dauða Bjarki Ármannsson skrifar 23. mars 2015 23:00 Frá mótmælum vegna árásarinnar í dag. Vísir/EPA
Afgönsk kona sem barin var til dauða af hópi fólks í höfuðborginni Kabúl í síðustu viku var borin til grafar í gær. Átján manns hafa verið handteknir vegna atviksins og þrettán lögreglumönnum vísað tímabundið úr starfi fyrir að hafa ekki gert nóg til að bjarga konunni.Að því er kemur fram á vef BBC var Farkúnda, 27 ára guðfræðinemi, drepin eftir rifrildi við íslamskan múlla sem var að selja konum einhvers konar happagripi við helgiskrín. Er þau rifust var hún ásökuð um að hafa brennt eintak af Kóraninum og við það brást mannfjöldinn ókvæða við og réðst á hana. Konan var meðal annars barin með kylfum og bíl keyrt yfir hana áður en kveikt var í henni. Sjónarvottar og rannsóknarmenn lögreglunnar segja ekkert benda til þess að Farkúnda hafi í raun kveikt í trúarritinu. Hundruð Afgana komu saman að mótmæla í dag vegna árásarinnar. Ríkisstjórn landsins og lögregluyfirvöld hafa viðurkennt alvarleika málsins og talsmaður innanríkisráðuneytisins játaði að lögregla hefði getað brugðist betur við til að reyna að bjarga Farkúnda. Þá hefur Asraf Ganí, forseti landsins, kallað eftir rannsókn á atburðinum.
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Fleiri fréttir Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Sjá meira