Erlent

Airbus-þota Germanwings hrapaði í frönsku Ölpunum

Atli Ísleifsson skrifar
Germanwings er í eigu þýska flugfélagsins Lufthansa.
Germanwings er í eigu þýska flugfélagsins Lufthansa. Vísir/AFP
Airbus-þota Germanwings hefur hrapað í frönsku Ölpunum. 150 farþegar voru um borð í vélinni.

  • 144 farþegar og sex áhafnarmeðlimir voru um borð. Allir eru taldir af.
  • Vélin, Airbus A320 með flugnúmer 4U 9525, var á leið frá Barcelona á Spáni til Düsseldorf í Þýskalandi.
  • Brak vélarinnar fannst í um 2.000 metra hæð milli bæjanna Dinde-les-Bains og Barcelonnette, um 100 kílómetrum norður af Nice.
  • Ekki er ljóst hvað olli slysinu, en fínt var í veðri á þeim slóðum sem vélin fórst.
  • Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að flestir um borð hafi verið þýskir ferðamenn á leið heim úr fríi frá Barcelona og Mallorca, en einnig þýskir skiptinemar á leið heim. Þá voru einnig 45 Spánverjar um borð.
  • Einungis er hægt að komast á slysstaðinn með þyrlu eða með því að fara fótgangandi. Aðstæður eru erfiðar, veður fer versnandi og brátt tekur að dimma.
  • Ekkert bendir til að um hryðjuverk hafi verið að ræða.
  • Fjöldi franskra fjölmiðla hafa greint frá því að franski hershöfðinginn David Galtier, sem þátt tekur í björgunaraðgerðum, segist hafa séð líkama hreyfast á því svæði sem brak vélarinnar er. Að einhver hafi lifað slysið af hefur þó ekki fengist staðfest.
  • Franska blaðið La Dauphine hefur birt mynd sem það segir vera þá fyrstu frá slysstaðnum.
AFP greinir frá því að vélin, sem er af gerðinni Airbus320, sé vél Germanwings, dótturfélags Lufthansa. Flugnúmer vélarinnar er 4U 9525.

Vélin var á leið frá Barcelona til Düsseldorf. Vélin hrapaði um 100 kílómetrum norður af Nice, milli bæjanna Dinde-les-Bains og Barcelonnette.

Vélin átti upphaflega að taka á loft frá Barcelona klukkan 9:35 að staðartíma en vegna seinkunar tók hún á loft 10:01. Til stóð að lenda í Düsseldorf 11:55.

AFP hefur eftir starfsmanni franskra flugmálayfirvalda að flugmenn vélarinnar hafi ekki sent neitt neyðarkall áður en vélin hrapaði. Veður var mjög gott á þeim stað þar sem slysið varð.

Tíu manna frönsk hersveit er nú komið á slysstaðinn. Frönsk yfirvöld segja að aðgerðir á slysstað komi til með að taka marga daga, en brak vélarinnar dreifist á um tveggja hektara svæði.

Vélin fór úr 38 þúsund feta hæð í 6 þúsund feta hæð á um átta mínútum. Vélin hvarf svo af ratsjám.

Að neðan má fylgjast með beinni útsendingu Sky News vegna harmleiksins



Mikill harmleikur

Francois Hollande, forseti Frakklands, segir að um mikinn harmleik sé að ræða og að búist sé við að enginn hafi lifað flugslysið af.

Talsmaður Germanwings segir að 67 Þjóðverjar hafi verið um borð í vélinni, þó að það hafi ekki fengist endanlega staðfest. Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að 45 Spánverjar hafi verið um borð. Þá hefur Didier Reynders, utanríkisráðherra Belgíu, staðfest að einn Belgi hafi verið um borð í vélinni.

Að sögn katalónska blaðsins La Vanguardia voru sextán þýsk börn úr Joseph König skóla og tveir kennarar þeirra um borð í vélinni. Þeir höfðu stundað nám í Giola de Llinars del Vallès skólanum í Barcelona og voru á leið heim til borgarinnar Haltern am See eftir dvöl sína á Spáni.

Rannsókn er þegar hafin til að skera úr um hvað olli slysinu, en flugritar vélarinnar hafa þegar fundist.

Flugmaður vélarinnar hafði starfað sem flugmaður í tíu ár og átti rúmlega 6 þúsund flugtíma að baki.

Leiðin á slysstaðin mjög erfið yfirferðar

Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, segist hafa fyrirskipað innanríkisráðherranum Cazeneuve að halda á slysstaðinn. Þá hefur sérstöku neyðarteymi verið komið á til að samhæfa aðgerðir.

Pierre-Henry Brandet, talsmaður franska innanríkisráðuneytisins, segir að brak vélarinnar hafi fundist í fjöllunum í um 2.000 metra hæð. Franska blaðið Le Monde greinir frá því að 240 slökkviliðsmenn og um 200 lögreglumenn séu nú á leið á staðinn. Um 30 til 45 mínútna ganga er að slysstaðnum frá næsta vegi og er leiðin er mjög erfið yfirferðar. Þá fer veður versnandi og brátt tekur að dimma.

Fréttamaður Daily Mirror segir að lík hinna látnu verði flutt í íþróttasal Seyne-Les-Alpes sem hefur verið breytt í bráðabirgðalíkhús.

Vélin hvarf af ratsjám nærri bænum Barcelonnette í Frakklandi.
Talsmaður þýskra stjórnvalda segir að sem stendur bendi ekkert til að hryðjuverk hafi valdið því að vélin hrapaði.

Angela Merkel Þýskalandskanslari segir þýsku þjóðina í áfalli vegna frétta af slysinu og segist sjálf munu fara á slysstaðinn á morgun.

Franskur karlmaður varð vitni af því þegar vélin hrapaði. „Ég sá ekki mikið, bara tvær eða þrjár sekúndur. Vélin flaug mjög lágt, bara í um 1.500 eða 2.000 metra hæð. Ég hugsaði að svona tækist henni ekki að komast yfir fjöllin. Síðan varð mikil sprenging,“ segir Sébastien Giroud í samtali við La Figaro.

25 ára gömul vél

Germanwings er þýskt lággjaldaflugfélag með höfuðstöðvar í Köln. Það var stofnað árið 1997 og hét þá Eurowings Flug GmbH. Lufthansa keypti félagið í ársbyrjun 2009.

Að sögn þýska blaðsins Bild var vélin 25 ára gömul sem flaug fyrst í nóvember 1990. Vélin gekk undir nafninu Mannheim og var hluti af flugflota Lufthansa fram til ársins 2003.

Talsmaður Germanwings segir að vélin hafi síðast farið í gegnum umfangsmikla skoðun sumarið 2013.

Yfirlit yfir komur á flugvellinum í Düsseldorf.Vísir/AP
Tveggja hreyfla þota

Airbus320 er tveggja hreyfla þota sem notuð er til að farþega- og farmflutninga. Vélarnar geta flutt 180 farþega.

Þúsundir Airbus A320 véla eru nú í notkun hjá fjölda flugfélaga víða um heim. Ellefu mannskæð slys hafa orðið frá því að flugvélagerðin var tekin í notkun árið 1988. Nýlegasta slysið varð í desember 2014 þegar vél AirAsia fórst yfir Javahafi með 162 innanborðs.

Vélin er 37,5 metra löng og 40 tonn að þyngd. Á eftir Boeing 737 er Airbus320 mest selda flugvélagerð í heimi.

Hlutabréf í Lufthansa hafa fallið um 5,2 prósent og Airbus hefur fallið um 3,6 prósent í kjölfar tilkynninga af slysinu. Þetta kemur fram á vef Business Insider.

Þann 20. janúar 1992 hrapaði Airbus320 vél í Frakklandi, nærri Mont Sainte-Odile. 87 manns fórust í því slysi.

Fréttin verður uppfærð.

Vísir/Getty
Þyrla á leið á slysstaðinn.Vísir/AFP
Fjöldi franskra fjölmiðla hafa greint frá því að franski hershöfðinginn David Galtier, sem þátt tekur í björgunaraðgerðum, segist hafa séð líkama hreyfast á því svæði sem brak vélarinnar er. Að einhver hafi lifað slysið af hefur þó ekki fengist staðfest. Yfirvöld í Frakklandi staðfestu hrapið á ellefta tímanum.
Vélin fór í 38 þúsund feta hæð en missti samband er hún var komin í 6 þúsund feta hæð. Flugleiðin og flughæðin frá Barcelona áleiðis til Frakklands. Forseti Frakklands Francois Holland vottar fjölskyldum hinna látnu samúð sína. Forsvarsmenn Lufthansa segjast ekki enn vita hvað fór úrskeiðis Yfirlitsmynd af fjalllendinu þar sem vélin hrapaði Björgunarlið býr sig undir að halda á slysstað. Þyrla hringsólar í kringum slysstaðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×