Lífið

Tróð tannkremi í augun og tók brjálæðiskast

Íslendingar hafa sjaldan vakið jafn mikla athygli í Eurovision og þegar þeir sendu ólíkindatólið Silvíu Nótt til keppninnar í Grikklandi árið 2006.

Þó löngu hafi verið orðið ljóst hér heima að persónan var leikin vissu áhorfendur í Aþenu það ekki. Og þegar kom að því að stíga á svið eftir að hafa ausið svívirðingum yfir blaðamenn og aðra keppendur hlaut Silvía óblíðar móttökur, það var púað á hana.

Ágústa Eva Erlendsdóttir sem stóð á bak við Silvíu segist ekki hafa litist á blikuna.

„Það var rosalegt að vera þarna baksviðs og heyra púið eins og áþreifanlega öldu. Þetta var bara neikvæð orka í risa magni, og þú finnur hana á þér,” segir Ágústa, sem ákvað að hugsa um púið eins og verið væri að fagna henna til að geta komist í gegnum atriðið.

Þegar ljóst var að Silvía kæmist ekki upp úr undankeppninni varð þessi geðstirða diva að sjálfsögðu að bregðast við á sinn hátt. Ágústa hljóp inn í búningsherbergi, setti tannkrem í augun á sér til að kalla fram tár og tók brjálæðiskast á alla viðstadda.

„Þetta er bara spunaleikrit, maður verður bara að halda boltanum gangandi,” segir Ágústa, sem fór hreinlega hamförum eftir úrslitin orgaði, skammaðist og skellti hurðum.

„Dælan gekk bara þar til ljósin slökknuðu.“

Ágústa var í viðtali í Fókus á Stöð 2 á laugardaginn þar sem hún rifjaði Eurovisionförina upp, en brot úr þættinum má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Ágústu Evu boðið hlutverk í sápuóperu

Íslendingar þekktu hvorki haus né sporð á leikkonunni Ágústu Evu þegar hún steig fram á sjónvarsviðið í gervi hinnar orðljótu og sjálfhverfu Silvíu Nætur, enda hafði ekki mikið farið fyrir henni á sviði hérlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×