Það kostar að taka lán Ásta S. Helgadóttir skrifar 12. mars 2015 08:00 Áður en tekið er lán er mikilvægt fyrir lántaka að gera sér grein fyrir öllum þeim kostnaði sem fylgir lántöku. Ekki er nægjanlegt að líta einungis til vaxtaprósentunnar þegar verið er að leita eftir hagstæðasta láninu. Lántökukostnaður og þau gjöld sem krafist er þegar greitt er af láninu, eins og seðilgjöld, geta verið misjöfn. Í lögum um neytendalán og í reglugerð byggð á þeim er fjallað um Árlega hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK) þar sem vextir og lántökukostnaður er mældur á ársgrundvelli. Þessi prósentutala má ekki vera hærri en 50% að viðbættum stýrivöxtum. Með því að skoða ÁHK er því hægt að sjá hversu hagkvæm lán eru, með tilliti til lántökukostnaðar sem getur verið ærið misjafn milli lánveitenda. Lántökukostnaður getur til að mynda verið það hár að lán sem auglýst er „vaxtalaust“ getur verið óhagkvæmara en lán sem veitt er með vöxtum. Ef einstaklingur óskar eftir að taka lán að upphæð 2.000.000 kr., eða hærra, þarf lánveitandi að framkvæma mat á greiðslugetu. Ef um er að ræða hjón eða sambýlisfólk er miðað við 4.000.000 kr. Er mismunandi eftir fjármálafyrirtækjum hver kostnaður er við greiðslumat, en það getur verið á bilinu 3.500 kr. til 8.300 kr. Allir bankarnir krefjast 1-2% af heildarupphæð láns í lántökugjald. Því má velta fyrir sér hvort kostnaður við lántöku eigi að vera misjafn eftir því hve hátt lánið er, eða hvort eðlilegra sé að lántökugjaldið sé föst krónutala sem endurspegli kostnað við lántöku eða misjafn eftir fjölda gjalddaga til að endurspegla kostnað við innheimtu. Fjármálastofnanir krefjast svo einnig að lántaki greiði um 3.000 kr. til um 6.000 kr. fyrir skjalagerð. Þegar lán hefur verið veitt þarf lántaki einnig að greiða gjald fyrir þinglýsingu í ríkissjóð sem er nú föst krónutala 2.000 kr. Eftir lántöku þarf skuldari að greiða vexti og eftir atvikum verðbætur, auk greiðslna af höfuðstól láns. Þá er krafist greiðslna fyrir seðilgjald, eða tilkynningagjald, við hvern gjalddaga. Hagkvæmast er seðilgjaldið ef tilkynningin er rafræn og greiðsla af láni skuldfærist sjálfkrafa af reikningi lántakanda. Ef lántakandi kýs hins vegar að greiða sjálfur á gjalddaga getur seðilgjaldið rúmlega fjórfaldast og orðið jafnvel um 600 kr. á hvern gjalddaga. Það er umhugsunarvert að það skuli vera við lýði við greiðslu á lánum, sem og öðrum reikningum, að greiðanda skuli ekki bjóðast sá möguleiki á að borga sína skuld, án þess að vera rukkaður fyrir það sérstaklega. Það er mikilvægt að kynna sér vel verðskrár og allan kostnað hjá þeim sem veita lán og bera saman þar sem um verulegan verðmun getur verið að ræða. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tökum Viktor á þetta og enn lengra Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er mörgum lesendum Vísis slétt sama um afkomu sína og velferð? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun