Bílar

Hammond og May neita að vinna án Clarkson

Finnur Thorlacius skrifar
Top Gear þríeykið við tökur.
Top Gear þríeykið við tökur.
Nú þegar Jeremy Clarkson úr Top Gear hefur verið vikið frá störfum hefur BBC boðið þeim James May og Richard Hammond að klára síðustu þættina í 22. þáttaröðinni einir. Svar þeirra var einfalt, eða nei.

Það ætla þeir ekki að gera án Jeremy Clarkson og standa þeir því þétt við bakið á félaga sínum og geta ekki hugsað sér að taka upp þættina án hans. Þessi afstaða þeirra kemur í kjölfar stuðnings frá yfir einni milljón aðdáenda þáttarins sem skrifað hafa undir stuðningsyfirlýsingu með Clarkson og hvetja með því BBC að endurráða hann.

Megnið af þáttunum þremur sem eftir voru hafa þegar verið teknir upp, en einhver lítil stúdíóvinna var þó eftir. Sagan haldur því áfram og forvitnilegt verður að sjá hvort Jeremy Clarkson verður ekki endurráðinn til að stjórna þáttunum áfram með May og Hammond.


Tengdar fréttir

Jeremy Clarkson vikið úr starfi

Þáttastjórnandi bílaþáttanna Top Gear hefur verið vikið úr starfi í kjölfar hávaðarifrildis við framleiðanda þáttanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×