Dæmdur í fangelsi fyrir að nauðga kærustu kunningja síns Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. mars 2015 13:23 Fram kemur í dómi héraðsdóms að framburður konunnar um hvað hafi gerst umrædda nótt sé trúverðugur auk þess sem gögn málsins styðja hann. Vísir/Getty
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Andra Karl Elínarson Ásgeirsson í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu á heimili hans í október 2013. Andri bauð konunni og kærasta hennar heim til sín í kjölfar þess að hann hitti parið á skemmtistað en mennirnir tveir voru kunningjar. Þegar heim til hans var komið hafi þau fengið sér bjór, spjallað og horft á sjónvarpsþátt. Konan kvaðst fyrir dómi ekki muna mikið eftir sjónvarpsþættinum því hún hafi verið orðin mjög þreytt og líklega sofnað. Kærastinn hennar og ákærði héldu áfram að spjalla saman en þegar að konan vaknaði vildi kærastinn að þau færu heim. Andri bauð þeim hins vegar að gista og sagði að þau gætu lagt sig í rúmið hans; hann myndi sofa á sófanum.Hélt að um kærastann sinn væri að ræða Þau fóru inn í rúm en síðar um nóttina vaknaði konan við það að einhver lá bak við hana og hafði samfarir við hana. Hún sagðist ekki í fyrstu ekki hafa kippt sér upp við þetta né sýnt mótþróa þar sem hún taldi að um kærasta sinn væri að ræða. Síðan hafi hún opnað augun og séð bak kærastans. Þá áttaði hún sig á hvað um var að vera. Kærastinn vaknaði líka og spratt upp en konan kvaðst fyrir dómi hafa farið út úr herberginu. Kærastinn sagði fyrir dómi að hann hafi orðið var við óeðlilegar hreyfingar í rúminu en ekkert séð því niðamyrkur var í herberginu. Hann tók í hönd kærustunnar sinnar og þreifaði frekar fyrir sér í rúminu. Þá áttaði hann sig á því Andri var einnig í rúminu og að hann væri „að taka brotaþola aftan frá“, eins og segir í dómi héraðsdóms. Við þetta missti maðurinn stjórn á sér, spratt upp og kveikti ljósið. Hann reif svo sængina af Andra og sá að hann var nakinn að neðan og með standpínu. Hann reyndi svo að kýla Andra en kærastan hans var á þessum tíma komin út. Hann fór út á eftir henni skömmu síðar og þau kölluðu til lögreglu sem handtók Andra á heimili hans seinna um nóttina.Viðurkenndi að hafa haft samræði við konuna en dró það svo til baka Fram kemur í dómi héraðsdóms að framburður konunnar um hvað hafi gerst umrædda nótt sé trúverðugur auk þess sem gögn málsins styðja hann. Hið sama sé hins vegar ekki hægt að segja um framburð Andra sem viðurkenndi við fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu að hafa haft samfarir við konuna, eða smá „pene“ eins og haft er eftir honum í dómnum. Átti hann þar við „penetration“. Hann breytti svo framburði sínum fyrir dómi og neitaði því að hafa haft samræði við konuna. Dómurinn taldi því rétt að byggja á framburði konunnar og dæmdi Andra í fangelsi í tvö ár. Þá var hann einnig dæmdur til að greiða konunni 1,2 milljónir í bætur. Dóminn í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Forystan sé búin að missa klefann Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Sjá meira