Innlent

Múslimarnir okkar: 4 trúfélög fengið ókeypis lóðir

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Margrét Friðriksdóttir, stuðningsmaður Pegida á Íslandi, fullyrðir í umræðuþætti sem verður birtur eftir seinni hluta Múslimanna okkar á mánudaginn, að engin trúfélög utan Þjóðkirkju hafi fengið ókeypis lóð hjá Reykjavíkurborg nema Félag múslima á Íslandi.

Þegar umsjónarmaður segir það rangt, dregur hún í land en kveðst ekki vita hvernig var með úthlutun lóða til Ásatrúarfélagsins og Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar.

Umsjónarmaður Múslimanna okkar hafði samband við Reykjavíkurborg til að grennslast fyrir um hið rétta í málinu. Hjá borginni fundust í fljótu bragði ekki upplýsingar um lóðir til trúfélaga fyrir árið 2006, en síðan þá hafa fjögur trúfélög fengið ókeypis lóðir hjá borginni. Það eru Rússneska rétttrúnaðarkirkjan, Búddistar, Ásatrúarfélagið og nú síðast Félag múslima á Íslandi. Fyrstu þremur lóðunum var úthlutað í tíð meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna en sú síðasta í meirihluta Besta flokks og Samfylkingar.

Við það má bæta að þegar lóð undir mosku var samþykkt í borgarráði í september 2013, lögðu borgarráðsfulltrúar Besta flokksins, Samfylkingar og Vinstri grænna fram bókun þar sem fram kemur að þar sem búast megi við fjölgun trúfélaga í fjölmenningarsamfélagi nútímans þá telji fulltrúarnir “affarasælast í framtíðinni að trúfélög sæki um og greiði fyrir lóðir í landi borgarinnar líkt og er um aðra starfsemi.” Jafnframt óska fulltrúarnir eftir því að Alþingi endurskoði lagaákvæði sem geri sveitarfélögum skylt að leggja til ókeypis lóðir undir kirkjur. Það fyrirkomulag sé tímaskekkja. Sjálfstæðismenn í borgarráði taka undir nauðsyn þess að endurskoða áðurnefnt lagaákvæði.

Seinni hluti Múslimanna okkar er í opinni dagskrá á Stöðv 2 kl. 19:20 á mánudagskvöld. Að þætti loknum verða umræður um múslima á Íslandi. Umsjónarmaður er Lóa Pind Aldísardóttir og kvikmyndatöku heimildaþáttanna annaðist Kristinn Þeyr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×