Formúla 1

Manor tilkynna fyrri ökumann sinn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Will Stevens hefur fulla trú á að Manor komist til Ástralíu.
Will Stevens hefur fulla trú á að Manor komist til Ástralíu. Vísir/Getty
Manor GP liðið hefur staðfest að það ætli sér að taka þátt í Ástralíu eftir 17 daga. Will Stevens veðrur annar ökumanna liðsins.

Fyrrum Caterham ökumaðurinn sem tók þátt í sinni fyrstu keppni í Abú Dabí mun aka fyrir Manor.

„Will, 23 ára, hefur verið áður hjá Marussia, hann var varaökumaður liðsins undir lok tímabilsins 2014,“ sagði í yfirlýsingu liðsins.

Liðið er að vinna að 2015 bíl, sem í grunninn er 2014 bíllinn. Hann verður aðlagaður nýjum reglum, Manor segir bílinn geta verið tilbúinn fyrir fyrstu keppni. Það kæmi mörgum á óvart ef liðinu tækist það.

„Það er mjög spennandi að sjá allt koma saman hjá Manor eftir gríðarlega mikla vinnu sem hefur farið í að bjarga liðinu. Þetta hefði ekki verið hægt án þess ótrúlega stuðnings sem við höfum fengið frá birgjum og úr íþróttinni, mikilvægast af öllu er fólkið hjá Manor sem eru að vinna allan sólarhringinn til að tryggja að við komumst til Melbourne,“ sagði Stevens.

„Ég vil þakka liðinu fyrir traustið sem það sýnir mér og ég get ekki beðið eftir að sjá alla erfiðis vinnuna skila sér þegar við stillum okkur upp á ráslínunni eftir tvær vikur,“ bætti Steven við.


Tengdar fréttir

Byltingunni frestað til 2017

Umfangsmiklum reglubreytingum hefur verið frestað til 2017 eftir atkvæðagreiðslu á fundi skipulagsnefndar Formúlu 1 í dag.

Árekstur Alonso vindinum að kenna

Fernando Alonso lenti í harkalegu samstuði við varnarvegg á loka degi annarrar æfingalotu fyrir komandi tímabil.

Enn er von fyrir Manor Grand Prix

Manor Grand Prix liðið sem áður hét Marussia hefur formlega lokið skiptum á búi sínu. Þetta er stórt skref fyrir liðið sem stefnir á þátttöku á komandi tímabili.

Svona líta nýju formúlu eitt bílarnir út | Myndir

Eftir langan vetur er loksins komið að því, nýjir Formúlu bílar hafa litið dagsins ljós. Það er alltaf forvitnilegt að sjá hvað hönnuðum liðanna dettur í hug og hver þróunin verður í framhaldinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×