Sport

Anítu mætir þeirri fljótustu í ár

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aníta Hinriksdóttir setti Íslands- og Evrópumet unglinga um helgina.
Aníta Hinriksdóttir setti Íslands- og Evrópumet unglinga um helgina. vísir/valli
Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, verður á meðal keppenda á sterku innanhússmóti í Birmingham laugardaginn 21. febrúar.

Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag, en á mótinu verður allt besta frjálsíþróttafólks Bretlands. Þar á meðal verður heims- og Ólympíumeistarinn í fimm og tíu kílómetra hlaupi, Mo Farah.

Sjá einnig:Lúxusvandamál á fundi stjórnar FRÍ á fimmtudaginn

Aníta keppir í 800 metra hlaupi og mætir þar hinni bresku Jenny Meadows sem er sú eina sem hefur hlaupið 800 metrana á undir tveimur mínútum á árinu.

Meadows hljóp á 1:59,21 mínútu í lok janúar en nýtt Íslands- og Evrópumet 19 ára yngri sem Aníta setti um helgina er 2:01,77 mínútur.

Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu, segir að hún hefði keppt á Norðurlandamótinu hefði hún ekki fengið boð á mótið í Birmingham. Þar hefði hún átt besta tímann á árinu.  „Það er bara enn betra að komast á svona sterkt mót,“ segir hann.


Tengdar fréttir

Aníta: Draumurinn að fá boð á Demantamót

Aníta Hinriksdóttir virðist í góðu formi í upphafi nýs árs en hún bætti eigið Íslandsmet í 800 m hlaupi innanhúss á Meistaramóti Íslands í Kaplakrika. Aníta bætti einnig eigið Evrópumet í flokki 19 ára og yngri.

Aníta með glæsilegt Íslandsmet

Hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir setti nýtt Íslandsmet í 800 metra hlaupi kvenna á Meistaramóti Íslands innanhús í Kaplakrika í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×