Saga þjóðar Hafdís Hanna Ægisdóttir skrifar 20. febrúar 2015 08:00 Það er vetur. Jörð er frosin og vorverkin í garðinum fjarri huga okkar. En með hækkandi sól sjáum við fyrr en síðar merki um að sumar sé í nánd þegar moldin þiðnar og gróðurinn lifnar við. Moldin undir fótum okkar er ein dýrmætasta auðlind jarðar. Moldin er hvorki líflaus né óáhugaverð, hún er full af lífi, hún er undirstaða fæðuframboðs í heiminum, hreinsar og miðlar vatni og er samofin sögu okkar og menningu. Verndun jarðvegs er okkur Íslendingum hjartans mál. Við landnám var landið gróið og gjöfult en ósjálfbær landnýting í bland við óblíð náttúruöflin ollu því að landið var tötrum klætt í byrjun 20. aldar. Mikið og gott landgræðslustarf síðustu rúm 100 árin hefur skilað miklu en betur má ef duga skal. Til að vekja athygli á moldinni eða jarðveginum hafa Sameinuðu þjóðirnar nú tilnefnt 2015 sem alþjóðlegt ár jarðvegs. Í tilefni af því mun Hið íslenska náttúrufræðifélag bjóða upp á erindi Ólafs Arnalds, jarðvegsfræðings við Landbúnaðarháskóla Íslands, „Því af mold ert þú...“ á undan aðalfundi félagsins á morgun, laugardaginn 21. febrúar, kl. 14 í sal Þjóðminjasafnsins. Hinu íslenska náttúrufræðifélagi er fátt óviðkomandi er kemur að náttúru landsins og er jarðvegurinn þar svo sannarlega ekki undanskilinn. Félagið á sér langa sögu en það var stofnað árið 1889. Tilgangur þess er að efla íslensk náttúruvísindi, glæða áhuga og auka þekkingu manna á öllu er snertir náttúrufræði. Félagið gefur út alþýðlega fræðsluritið Náttúrufræðinginn í samvinnu við Náttúruminjasafn Íslands ásamt því að halda fræðsluerindi og láta sig málefni náttúrufræða varða. Jarðvegurinn undir fótum okkar á sér sögu. Sögu eldgosa – sögu hnignunar – sögu vistheimtar – sögu þjóðar. Jarðvegi þarf að hlúa að og vernda. Það er von okkar í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi að alþjóðlegt ár jarðvegs árið 2015 muni vekja athygli á þessari verðmætu en takmörkuðu auðlind því að heilbrigður jarðvegur stuðlar að heilbrigðri jörð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Sjá meira
Það er vetur. Jörð er frosin og vorverkin í garðinum fjarri huga okkar. En með hækkandi sól sjáum við fyrr en síðar merki um að sumar sé í nánd þegar moldin þiðnar og gróðurinn lifnar við. Moldin undir fótum okkar er ein dýrmætasta auðlind jarðar. Moldin er hvorki líflaus né óáhugaverð, hún er full af lífi, hún er undirstaða fæðuframboðs í heiminum, hreinsar og miðlar vatni og er samofin sögu okkar og menningu. Verndun jarðvegs er okkur Íslendingum hjartans mál. Við landnám var landið gróið og gjöfult en ósjálfbær landnýting í bland við óblíð náttúruöflin ollu því að landið var tötrum klætt í byrjun 20. aldar. Mikið og gott landgræðslustarf síðustu rúm 100 árin hefur skilað miklu en betur má ef duga skal. Til að vekja athygli á moldinni eða jarðveginum hafa Sameinuðu þjóðirnar nú tilnefnt 2015 sem alþjóðlegt ár jarðvegs. Í tilefni af því mun Hið íslenska náttúrufræðifélag bjóða upp á erindi Ólafs Arnalds, jarðvegsfræðings við Landbúnaðarháskóla Íslands, „Því af mold ert þú...“ á undan aðalfundi félagsins á morgun, laugardaginn 21. febrúar, kl. 14 í sal Þjóðminjasafnsins. Hinu íslenska náttúrufræðifélagi er fátt óviðkomandi er kemur að náttúru landsins og er jarðvegurinn þar svo sannarlega ekki undanskilinn. Félagið á sér langa sögu en það var stofnað árið 1889. Tilgangur þess er að efla íslensk náttúruvísindi, glæða áhuga og auka þekkingu manna á öllu er snertir náttúrufræði. Félagið gefur út alþýðlega fræðsluritið Náttúrufræðinginn í samvinnu við Náttúruminjasafn Íslands ásamt því að halda fræðsluerindi og láta sig málefni náttúrufræða varða. Jarðvegurinn undir fótum okkar á sér sögu. Sögu eldgosa – sögu hnignunar – sögu vistheimtar – sögu þjóðar. Jarðvegi þarf að hlúa að og vernda. Það er von okkar í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi að alþjóðlegt ár jarðvegs árið 2015 muni vekja athygli á þessari verðmætu en takmörkuðu auðlind því að heilbrigður jarðvegur stuðlar að heilbrigðri jörð.
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun