Formúla 1

Maldonado fljótastur á viðburðaríkri æfingu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Það er allt annað að sjá til Lotus liðsins núna en á sama tíma í fyrra.
Það er allt annað að sjá til Lotus liðsins núna en á sama tíma í fyrra. Vísir/Getty
Pastor Maldonado á Lotus setti besta tímann á fyrsta degi annarrar æfingalotu fyrir komandi tímabil í Formúlu 1. Dagurinn var gríðarlega viðburðaríkur.

Kimi Raikkonen á Ferrari var lengst framan af fljótastur en tími Maldonado var 0,156 sekúndum betri en Raikkonen. Þessi æfingalota fer fram á Katalóníubrautinni og voru tímar Maldonado og Raikkonen betri en tíminn sem Lewis Hamilton tryggði sér ráspól með á brautinni í fyrra.

Hamilton hætti akstri snemma í morgun vegna veikinda. Hann var búinn að aka 11 hringi og átti lakasta tíma dagsins, rúmum fimm sekúndum hægari en Maldonado.

Mercedes brá á það ráð að kalla til þróunarökumann sinn, Pascal Wehrlein, sem var að sinna æfingum fyrir Force India, hann ók því báðum bílum í dag. Hinn tvítugi Wehrlein ók 62 hringi í Force India bílnum og 18 í Mercedes bílnum. Hann fór næstum tveimur tíundu úr sekúndu hraðar á Force India bílnum.

Veikindi Hamilton þýddu það að Sergio Perez kláraði daginn fyrir Force India. hann var rúmlega einni og hálfri sekúndu hægari en Maldonado en náði fjórða besta tímanum og ók 34 hringi. Perez átti ekki að aka fyrr en á morgun.

Óljóst er hvort Nico Rosberg getur ekið á morgun, hann finnur fyrir eymslum í hálsi. Kannski fær Wehrlein aftur tækifæri í Mercedes bílnum á morgun.

Susie Wolff, þróunarökumaður Williams lenti í samstuði við Felipe Nasr á Sauber og skemmdust báðir bílar talsvert. Bæði náðu þau þó að keyra meira undir lok dags, þökk sé öflugu þjónustuliði beggja liða.


Tengdar fréttir

Bannað að breyta útliti hjálmanna

FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið hefur ákveðið að breyta reglum um útlit hjálma fyrir komandi tímabil. Nú má útlitið ekki breytast yfir tímabilið.

Byltingunni frestað til 2017

Umfangsmiklum reglubreytingum hefur verið frestað til 2017 eftir atkvæðagreiðslu á fundi skipulagsnefndar Formúlu 1 í dag.

Raikkonen endar æfingalotuna á toppnum

Kimi Raikkonen á Ferrari setti í dag hraðasta tíma fyrstu æfingalotunnar fyrir komandi keppnistímabil í Formúlu 1. Þrír óku yfir 100 hringi í dag.

Svona líta nýju formúlu eitt bílarnir út | Myndir

Eftir langan vetur er loksins komið að því, nýjir Formúlu bílar hafa litið dagsins ljós. Það er alltaf forvitnilegt að sjá hvað hönnuðum liðanna dettur í hug og hver þróunin verður í framhaldinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×