Handbolti

Ásgeir Örn: Frakkarnir eru ekki bara góðir handbolta heldur líka flottir gæjar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Ásgeir Örn Hallgrímsson. Vísir/Eva Björk
Íslenski landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson þekkir fjölmarga leikmenn sem spila í franska liðinu eftir dvöl sína í Frakklandi. Hann eins og félagar hans í íslenska landsliðinu bíður spenntur eftir leiknum við Frakka annað kvöld.

„Frakkarnir eru með frábært lið bæði varnar og sóknarlega og góðan markmann. Þeir hafa bara verið besta liðið í heiminum undanfarin tíu ár og verðugur andstæðingur," sagði Ásgeir Örn í viðtali við Arnar Björnsson.

Eru þeir ekkert farnir að slakna?

„Þeir unnu síðasta mót en þeir eru eitthvað farnir að eldast og það hafa verið einhverjar breytingar hjá þeim en þeir ennþá mjög góðir.  Þeir sem ég hef kynnst í liðinu eru flottir gæjar, skemmtilegir og mjög góðir í hóp,“ segir Ásgeir.

Hver er lykillinn að því að ná góðum úrslitum gegn þeim? „Fyrst og síðast þurfum við að ná góðri vörn og markvörslu og við getum ekki leyft okkur að klikka á jafnmörgum dauðafærum eins og í tveimur síðustu leikjum. Við komum örugglega til með að spila svipaðan leik og hingað til á mótinu en við þurfum bara að skora úr þeim færum sem við erum að fá.   Við þurfum að halda einbeitingu í þessum opnu færum sem við erum að fá.  Það er nauðsynlegt að halda þolinmæði og einbeitingu þótt við séum ekki endilega að skora strax“.

Nú hefur Thierry Omeyer oft verið erfiður í markinu.  Eru þið búnir að finna lausn á því að skora hjá honum?

„Við þurfum bara að skjóta þar sem hann er ekki.  Annars held ég að það sé engin patent lausn á því .  Við þurfum bara að vera einbeittir og vanda skotin, sjá hvernig hann er að hreyfa sig og hvað hann er að gera og undirbúa okkur pínulítið fyrir þetta“.

Franska landsliðið er eins og það íslenska á Intercontinental hótelinu í Doha og það fer vel á með leikmönnum enda þekkjast þeir vel.  

„Maður hittir þá hérna á hótelinu og spjallar létt við þá.  Það er ekkert sálfræðistríð í gangi, menn eru orðnir það sjóaðir í þessu að ég held að það sé löngu hætt að virka,“ segir Ásgeir en hér fyrir neðan má sjá allt viðtalið við hann.


Tengdar fréttir

Snorri Steinn með tvöfalt tímamótamark á móti Alsír

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sögulegt mark fyrir íslenska handboltalandsliðið í sigurleiknum á móti Alsír á HM í handbolta í gær. Fyrra mark Snorra í leiknum var nefnilega tvöfalt tímamótamark.

Aron með flestar stoðsendingar á HM til þessa

Aron Pálmarsson er efstur í stoðsendingum hjá mótshöldurum eftir tvær fyrstu umferðirnar á HM í handbolta í Katar og hann er jafnframt í 3. sæti yfir þá sem hafa átt þátt í flestum mörkum.

Aron Rafn: Gaui er búinn að tala um að hann geti þetta ennþá

Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson stóð sig mjög vel þegar hann kom inná í leiknum gegn Alsír í gær. Hann varði 6 af 9 skotum á lokakaflanum þegar Íslendingar náðu að sigla sigrinum í höfn. Aron Rafn bíður spenntur eftir leiknum við Frakka en Arnar Björnsson hitti á hann í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×