Íslensk páskaegg vinsæl á Norðurlöndunum ingvar haraldsson skrifar 16. mars 2015 17:06 Hér má sjá páskaegg frá Nóa Síríusi sem eru til sölu í búðinni Meny í Nesttun í Bergen. mynd/jóhanna gísladóttir „
Það eru svæði bæði í Danmörku og Svíþjóð þar sem Íslendingar eru en eggin ná ekki til og þá fáum við alveg að heyra það,“ segir Þórhallur Ágústsson, viðskiptastjóri útflutnings hjá Nóa Síríus. „Þetta er mikið eins og maltið og appelsínið. Þetta er vara þess tíðaranda og fólk vill mjög gjarnan fá hana,“ bætir Þórhallur við. Nói Síríus flytur á hverju ári fjölda páskaeggja til Norðurlandanna. Um miðjan febrúar sendi fyrirtækið milli fimm og sex þúsund páskaegg til Norðurlandanna, sem dugar til að fylla einn fjörutíu feta gám og ríflega það að sögn Þórhalls. Þórhallur segir eftirspurnina eftir páskaeggjunum mikla. „Hún er líklega í beinu samhengi við fólksfjölda Íslendinga á ákveðnum svæðum,“ segir hann. Nói Síríus stefnir á vöxt erlendis Þórhallur segir fyrirtækið vera í sókn erlendis á næstunni en um tíu prósent af sölu Nóa Síríus er í útlöndum. Fyrirtækið selur mikið til Whole Foods verslunarkeðjunnar í Bandaríkjunum að sögn Þórhalls. „Þar erum við að breikka vöruúrvalið og stækka dreifingarnetið.“ Fyrirtækið gerði einnig nýlega samninga við NorgesGruppen, stærsta dreifingaraðila á dagvöru í Noregi. „Við sjáum fram á mikla söluaukningu í Noregi á næstu árum,“ segir Þórhallur.
Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira