Færeyingar kjósa til þings Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. september 2015 07:00 Samsteypustjórn fjögurra hægri- og miðjuflokka er nú við stjórn í Færeyjum.
Nokkur spenna ríkir um úrslit lögþingskosninganna í Færeyjum, sem haldnar verða í dag. Tvær skoðanakannanir, sem báðar birtust í gær, eru harla misvísandi. Gallup spáir Jafnaðarflokknum öruggum sigri og þar með falli stjórnar hægri- og miðjuflokkanna, en Fynd spáir því að Fólkaflokkurinn, sem er einn stjórnarflokkanna, verði stærstur.Kaj Leo Johannessen lögmaður gerir sér vonir um að stjórnarmeirihlutinn haldi velli, þrátt fyrir misvísandi skoðanakannanir.Mynd/Norden.orgEkki yrði munurinn þó mikill. Fjórum flokkum er öllum spáð í kringum 20 prósent atkvæða, þannig að Kaj Leo Johannessen lögmaður, sem er leiðtogi Sambandsflokksins, gæti enn átt möguleika á að halda velli. Núverandi samsteypustjórn fjögurra hægri- og miðjuflokka hefur haft 20 manna öruggan meirihluta á hinu 33 manna Lögþingi Færeyja. Sambandsflokkurinn og Fólkaflokkurinn hafa stjórnað með tilstilli tveggja minni flokka, Miðflokksins og Framsóknar.Kaj Leo hefur verið lögmaður síðan 2008, eða í tvö kjörtímabil samfleytt, en sigur hans í þingkosningunum árið 2011 markaði merkileg tímamót í Færeyjum því hann styrkti stöðu sína. Það hafði ekki gerst frá árinu 1948 að lögmaður og flokkur hans bættu við sig fylgi í kosningum eftir að hafa setið í eitt kjörtímabil. Sjálfur er Kaj Leo skipstjóri og var lengi vel þekktur knattspyrnumaður sem lék með færeyska landsliðinu. Hann stærir sig af því að hafa leitt Færeyjar út úr langvarandi krepputíð og úthýst atvinnuleysi að verulegu leyti. „Fyrir bara fáum árum var kreppa," sagði hann í ræðu sinni á Ólafsvöku nú í sumar. „En nú hefur gæfan snúist okkur í hag.“
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira