Keflvíkingar unnu frábæran sigur á Haukum í tvíframlengdum leik í Dominos-deild karla í gær.
Keflvíkingar hafa lengi þótt harðir í horn að taka en það hefur þó minna farið fyrir því á síðustu árum.
Hasarinn í þeim í gær minnti þó á gamla tíma. Þar fór fremstur í flokki Guðmundur Jónsson sem er reyndar Njarðvíkingur.
Strákarnir í Körfuboltakvöldi gerðu leikinn skemmtilega upp í gær og má sjá innslagið hér að ofan.
Körfuboltakvöld: Keflavík verður alltaf Keflavík
Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Haukar 109-104 | Karaktersigur Keflvíkinga eftir tvær framlengingar
Keflvíkingar eru með fullt hús stiga eftir tvo fyrstu leiki sína eftir 109-104 sigur á Haukum í tvíframlengdum leik í TM-höllinni í Keflavík í kvöld.