Borgin standi við stóru orðin Kristinn Steinn Traustason skrifar 18. desember 2014 07:00 Nú hefur fengist glæsileg niðurstaða í hönnunarsamkeppni um samþættan leik- og grunnskóla með aðstöðu fyrir frístunda- og félagsstarf, menningarmiðstöð, bókasafn, sundlaug og íþróttaaðstöðu Fram í Úlfarsárdal. Næstu skref eru að ljúka hönnun mannvirkjanna og hefja framkvæmdir. Húsnæði Dalskóla er mest aðkallandi í augum íbúa Úlfarsárdals, enda liðin sjö ár frá því fyrstu íbúar fluttu í hverfið. Búið er að selja allar fjölbýlishúsalóðir í hverfinu og eru nú eftir um 111 sérbýlishúsalóðir. Gera má ráð fyrir að nemendum Dalskóla muni fjölga verulega á næstu árum. Nemendur Dalskóla eru í dag um 200 og má áætla að þeir verði um 400 eftir tvö ár. Borgin hefur nú auglýst lóðirnar í hverfinu til sölu á föstu verði og til þess að vel takist til með sölu lóða verður borgin að sýna fram á raunhæfa og metnaðarfulla áætlun um hraða uppbyggingu á þessum nauðsynlega þjónustukjarna. Ekki er ásættanlegt að Reykjavíkurborg ætli sér næsta áratuginn eða tvo til uppbyggingar þegar borgin hefur nú þegar dregið lappirnar í um 15 ár tengt uppbyggingu íþróttamannvirkja fyrir íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals. Nú er komið að Reykjavíkurborg að standa við stóru orðin um myndarlega og hraða uppbyggingu í hverfinu eins og lofað var þegar lóðirnar í hverfinu voru boðnar út og seldar á mjög háuverði. Íbúar Úlfarsárdals og Grafarholts fagna niðurstöðu úr hönnunarsamkeppni og bíða spenntir eftir að sjá þessa glæsilegu hönnun verða að veruleika. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Nú hefur fengist glæsileg niðurstaða í hönnunarsamkeppni um samþættan leik- og grunnskóla með aðstöðu fyrir frístunda- og félagsstarf, menningarmiðstöð, bókasafn, sundlaug og íþróttaaðstöðu Fram í Úlfarsárdal. Næstu skref eru að ljúka hönnun mannvirkjanna og hefja framkvæmdir. Húsnæði Dalskóla er mest aðkallandi í augum íbúa Úlfarsárdals, enda liðin sjö ár frá því fyrstu íbúar fluttu í hverfið. Búið er að selja allar fjölbýlishúsalóðir í hverfinu og eru nú eftir um 111 sérbýlishúsalóðir. Gera má ráð fyrir að nemendum Dalskóla muni fjölga verulega á næstu árum. Nemendur Dalskóla eru í dag um 200 og má áætla að þeir verði um 400 eftir tvö ár. Borgin hefur nú auglýst lóðirnar í hverfinu til sölu á föstu verði og til þess að vel takist til með sölu lóða verður borgin að sýna fram á raunhæfa og metnaðarfulla áætlun um hraða uppbyggingu á þessum nauðsynlega þjónustukjarna. Ekki er ásættanlegt að Reykjavíkurborg ætli sér næsta áratuginn eða tvo til uppbyggingar þegar borgin hefur nú þegar dregið lappirnar í um 15 ár tengt uppbyggingu íþróttamannvirkja fyrir íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals. Nú er komið að Reykjavíkurborg að standa við stóru orðin um myndarlega og hraða uppbyggingu í hverfinu eins og lofað var þegar lóðirnar í hverfinu voru boðnar út og seldar á mjög háuverði. Íbúar Úlfarsárdals og Grafarholts fagna niðurstöðu úr hönnunarsamkeppni og bíða spenntir eftir að sjá þessa glæsilegu hönnun verða að veruleika.