Stórt tækifæri Starri Freyr Jónsson skrifar 20. september 2014 10:15 „Við fáum um 30 mínútur og ætlum að reyna að nýta þær eins vel og við getum,“ segir Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson sem er lengst til vinstri. Fyrir miðju er Frosti Gnarr Jónsson og til hægri er Guðlaugur Einarsson. vísir/ernir
Íslenska hljómsveitin Fufanu mun hita upp fyrir tónlistarmanninn heimsfræga Damon Albarn í Royal Albert Hall í London í nóvember. Damon Albarn, sem er ein skærasta poppstjarna heims síðustu tveggja áratuga, er þekktastur sem söngvari Blur og aðalforsprakki hljómsveitarinnar Gorillaz sem selt hefur yfir 17 milljónir platna undanfarin ár. Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson, söngvari og trompetleikari Fufanu, kom auk þess að upptökum á fyrstu sólóplötu Damons Albarn sem kom út fyrr á árinu og spilaði á trompet með hljómsveit hans á stóru tónleikaferðalagi í sumar. Hann segir þá félaga hlakka mikið til tónleikanna og þeir séu alls ekkert stressaðir enda hafi orðið mikið spennufall hjá þeim eftir að Damon tilkynnti fréttina á Facebook-síðu sinni á miðvikudag. „Tónleikarnir verða stórt tækifæri fyrir okkur og þar sem við erum á sviðinu í Royal Albert Hall verður auðvitað öll athyglin á okkur. Það labbar enginn út úr salnum þannig að vonandi verðum við ekki allt of leiðinlegir. Við fáum um 30 mínútur og ætlum að reyna að nýta þær eins vel og við getum.“ Auk Hrafnkels skipa hljómsveitina Guðlaugur Einarsson gítarleikari, en þeir eru báðir á 22. aldursári, og Frosti Gnarr Jónsson tommuleikari sem er á 28. aldursári. Það vekur óneitanlega athygli þegar 22 ára trompetleikari frá Íslandi kemur að gerð fyrstu sólóplötu svo stórrar poppstjörnu sem Damon Albarn er. Faðir Hrafnkels, Einar Örn Benediktsson, sem lék í Sykurmolunum á sínum tíma og í Ghostigital undanfarin ár, er góður vinur Damons og því hefur Hrafnkell þekkt hann nánast alla ævi. „Damon er mikill vinur fjölskyldunnar og hefur stutt mig alla tíð í tónlistariðkun minni. Hann treysti mér því fullkomlega fyrir þessu stóra verkefni og til að taka þátt í tónleikaferðinni með honum í sumar.“ Eftir að Hrafnkell hafði spilað hin nýju lög Fufanu fyrir Damon í tónleikarútunni í sumar bauð hann hljómsveitinni að hita upp fyrir sig um haustið. Það var ekki síður mikil upplifun fyrir Hrafnkel að vera á tónleikaferðalagi með Damon og sveit hans í sumar. „Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið skemmtilegur tími. Ég hef náttúrulega alist upp við tónlist hans, meðal annars Blur, Gorillaz, The Good, the Bad & the Queen og Rocket Juice & the Moon. Hann er auk þess stór partur af Africa Express-hópnum sem tengir saman tónlistarmenn frá Vesturlöndum og Afríku. Í sumar varð maður svo partur af þessu ævintýri.“ Hrafnkell var hluti af 30 manna hljómsveit sem innihélt meðal annars sex manna kór og rappara. „Það var óneitanlega sérstök tilfinning að spila trompetsólóið í laginu End of the Century sem Blur gerði svo frægt á sínum tíma. Við spiluðum á mörgum tónlistarhátíðum og tónleikum og stundum fyrir jafnvel tugi þúsunda áhorfenda. Damon sjálfur er magnaður listamaður og sjálfsagt á enginn núlifandi tónlistarmaður jafn fjölbreyttan feril og hann.“ Meðlimir Fufanu eru að leggja lokahönd á fyrstu breiðskífuna sem kemur vonandi út í lok árs að sögn Hrafnkels. „Við erum komnir á samning hjá One Little Indian í London en það fyrirtæki hefur löngum verið duglegt að semja við íslenska tónlistarmenn. Þetta er stórt tækifæri fyrir okkur en það veltur svolítið á þeim hver næstu skref verða.“Nánari upplýsingar um Fufanu og tóndæmi má finna á Facebook-síðu sveitarinnar.
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Fleiri fréttir Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Sjá meira