Íslandsmeistari í fótbolta fjórum sinnum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. september 2014 16:00 Andri Fannar kveðst aldrei hafa skotið boltanum í ljósin heima hjá sér en örugglega hafa brotið eitthvað annað! Fréttablaðið/GVA
Hvenær byrjaðir þú í fótbolta? „Ég byrjaði að æfa fimm ára í 8. flokki.“ Í hvaða íþróttafélagi ertu og í hvaða flokki ertu núna? „Ég er í Breiðabliki og á að vera í 5. flokki miðað við aldur en æfi og keppi með 4. flokki, hinir strákarnir þar eru 13 og 14 ára.“ Hversu oft hefur þú orðið Íslandsmeistari með þínum flokkum og hvenær? „Ég hef orðið Íslandsmeistari fjórum sinnum. Fyrst með 6. flokki A 2011, með 5. flokki A 2012 með 5. flokki A 2013 og svo núna með 4. flokki A 2014.Andri Fannar er tólf ára en æfir með þrettán og fjórtán ára strákum.Hefurðu spilað fótbolta víða um landið? „Já, ég hef farið á mjög marga staði víða um landið að keppa. Það var rosalega gaman á Shell-mótinu í Vestmannaeyjum. Þar fórum við í alls konar ferðir og ég var valinn til að spila með landsliðinu. Það var líka rosalega gaman í sumar að fá að spila á aðalvellinum hjá Þór á Akureyri. Ég hef til dæmis aldrei fengið að spila á Kópavogsvelli.“ Hvað æfir þú oft í viku með félaginu? „Fjórum sinnum.“ Hefurðu gott svæði til að leika þér á nálægt heimilinu þínu? „Já, í Kópavogi eru mörg mjög góð svæði til að æfa sig á í fótbolta. Ég er með fótboltavöll beint fyrir framan húsið mitt í Salahverfi og svo er líka sparkvöllur við skólann.“„Manchester United og Barcelona eru mín lið," segir Andri Fannar.Hvað ertu búinn að skjóta niður margar ljósakrónur heima hjá þér?! „Ha, ha, ég hef verið svo heppinn að hafa aldrei hitt í ljósin en hef nú örugglega brotið eitthvað annað.“ Ertu alltaf með boltann á tánum eða áttu fleiri áhugamál? „Að spila fótbolta er það skemmtilegasta sem ég geri en mér finnst líka fínt að fara í golf, á motorcross-hjól og á fimleikaæfingu með Eyþóri Erni bróður mínum.“ Hvert er þitt átrúnaðargoð í boltanum? „Ég held upp á marga eins og Ronaldinho, Iniesta, Ronaldo, Messi, Xavi og Di Maria. Svo held ég líka upp á íslenska leikmenn eins og Gylfa Sig, Kolbein Sigþórs og Alfreð Finnboga.“ Meða hvaða erlenda liði heldurðu? „Manchester United og Barcelona eru mín lið, en mér finnst líka mjög gaman að fylgjast með Dortmund og Real Madrid.“ Í hvaða skóla ertu og og hver er eftirlætisnámsgreinin þín? „Ég er í Salaskóla og mér finnst skemmtilegast í íþróttum og svo er stundum gaman í stærðfræði.“ Hlustarðu á tónlist? „Já, ég hlusta mjög mikið á tónlist, en það er enginn einn tónlistarmaður eða -kona sem er uppáhalds.“ Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Atvinnumaður í fótbolta, ekki spurning.“
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Fleiri fréttir Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Sjá meira