Fyrstu tónleikar Bó í Hafnarfirði Gunnar Leó Pálsson skrifar 13. júní 2014 09:00 Björgvin Halldórsson kemur fram ásamt hljómsveit í Bæjarbíó á föstudagskvöldið. mynd/rósa „
Ég hef auðvitað margoft spilað í Hafnarfirði en það hefur mestmegnis verið á hinum ýmsu dansleikjum,“ segir tónlistarmaðurinn Björgvin Halldórsson, en hann kemur fram á sínum fyrstu formlegu tónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Menningar- og listafélag Hafnarfjarðar tók við lyklunum að hinu sögufræga Bæjarbíói í Hafnarfirði á dögunum og eru tónleikar Bó fyrsta skref félagsins í að gera bíóið að menningarhúsi bæjarins. „Ég fer yfir ferilinn á tónleikunum og verð með frábæra hljómsveit með mér. Mér þykir mjög vænt um þetta hús og hlakka mikið til að spila þarna,“ segir Björgvin. Bæjarbíó var upphaflega tekið í notkun árið 1942 en húsið hefur verið lítið notað í annað en kvikmyndasýningar á vegum Kvikmyndasafns Íslands undanfarin ár. „Þegar ég var yngri voru tvö bíó í Hafnarfirði, Bæjarbíó og Hafnarfjarðarbíó. Það er ákaflega ánægjulegt að félagið ætli að opna húsið meira fyrir almenning.“ Stefna Menningar- og listafélags Hafnarfjarðar er einmitt sú að húsið verði sem mest opið framvegis fyrir tónleika, kvikmyndasýningar og allt mögulegt sem þykir henta þessu góða húsi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 í kvöld. „Miðasalan fer meðal annars fram á Súfistanum sem er einmitt beint á móti bíóinu.“
Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira