Fannst skemmtilegt að detta í sjóinn Krakkasíðan skrifar 14. júní 2014 12:00 Bjarni Þór. „Það var árabáturinn sem var erfiðast að eiga við. Það er mjög erfitt að róa.“ Vísir/Stefán
Ég heiti Bjarni Þór Lúðvíksson, kallaður Baddi, og er 9 ára – bráðum 10. Ég fer í fimmta bekk í Melaskóla í haust. Ég hef rosalega mikinn áhuga á fótbolta og keppi með eldra ári hjá 6. flokki í KR. Ég er að læra á gítar og æfi golf og er núna að byrja sumaræfingar á mánudögum og þriðjudögum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Mig langar að fá forgjöf sem fyrst, en við sjáum til hvernig gengur með það í sumar. Svo er ég líka í skátunum. Ég er drekaskáti í Ægisbúum.“ Hvers vegna ákvaðstu að fara á siglinganámskeið? „Af því að mér fannst það mjög spennandi og margir vinir mínir voru líka að fara. Svo var námskeiðið passlega langt, frá mánudegi til föstudags, og svo var það ekki langt frá þar sem ég á heima.“ Hafðirðu einhvern tíma siglt áður? „Já, en ég hafði ekki áður siglt á bátum eins og þeim sem voru á námskeiðinu. Ég hef siglt á litla Glófaxa með afa Bedda í Vestmannaeyjum en hann var skipstjóri á Glófaxa VE 300. Svo hef ég oft farið með Herjólfi milli lands og Eyja. Ég hef líka siglt á Úlfljótsvatni og svo fór ég á bát frá Ísafirði til Hornstranda og aftur til Bolungarvíkur frá Látrum í fyrrasumar þegar við fórum í ferð um Vestfirði.“ Hvað lærðuð þið á námskeiðinu? „Ég lærði að stýra kajak almennilega, vera á hjólabáti og stjórna árabát. Svo lærðum við líka hvað við eigum að gera ef við dettum í sjóinn.“ Hvað var skemmtilegast? „Eiginlega var allt rosalega skemmtilegt og mjög gaman að læra á mismunandi tegundir báta. Ég held samt að mér hafi fundist seglbátarnir skemmtilegastir.“ En erfiðast? „Ekki spurning, það var árabáturinn sem var erfiðast að eiga við. Það er mjög erfitt að róa.“ Hefurðu siglt eitthvað síðan þú kláraðir námskeiðið? „Já, ég sigldi á kajak, hjólabátum og árabátum í Drekaskátaútilegunni sem ég var í um síðustu helgi á Úlfljótsvatni. Svo hef ég auðvitað farið með Herjólfi mörgum sinnum.“ Er ekkert hættulegt að sigla? „Örugglega er hættulegt að sigla, en ef maður fer varlega og er í björgunarvesti og gerir eins og manni er kennt, þá á allt að vera í lagi. Þetta lærðum við á námskeiðinu.“ Hefurðu dottið í sjóinn þegar þú ert að sigla? „Já, þegar ég var á kajak á námskeiðinu. Mér fannst reyndar mjög skemmtilegt að detta í sjóinn.“ Ætlarðu að læra meira og halda áfram að sigla sjálfur? „Það kemur bara í ljós – kannski. Vonandi mun afi minn í Eyjum kenna mér einhvern tíma að sigla.“ Myndirðu mæla með því við aðra krakka að fara á siglinganámskeið? „Já, ekki spurning. Það var mjög gaman að vera á námskeiðinu og læra það sem okkur var kennt um báta og siglingar.“
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira