Yfirlýsing No Borders 14. maí 2014 10:21 Við gerum alvarlegar athugasemdir við fréttaflutning stöðvar 2 af mótmælum okkar til stuðnings Izekor Osazee og öðrum flóttamönnum í kvöldfréttum nú í dag. Þrátt fyrir viðveru fréttamanna Stöðvar 2 á mótmælunum, bæði í dag og í gær virðast þeir frekar treysta orðum yfirvalda en eigin augum og rangtúlka með ævintýranlegum hætti atburðarás málsins.Friðsamleg mótmæli glæpagerðÍ inngangsorðum fréttarinnar er því slegið upp að lögregla hafi þurft að kalla út liðsauka þegar um 20 manns mótmæltu harðlega meðferðinni á Izekor í innanríkisráðuneytinu. Skilaboðin til áhorfenda eru að hætta hafi staðið af mótmælendum og að stórt lögreglulið hafi þurft til að stilla til friðar. Þá segir einnig að lögreglan hafi átt í vandræðum með að hafa stjórn á okkur. Þetta stangast á við myndskeið fréttarinnar sem sýna lögreglumenn valsa í rólegheitum um hópinn og þegar mótmælendur yfirgefa svo bygginguna sjálfviljugir án nokkurra átaka eða valdbeitingar. Það áréttist hér með að mótmælin voru hávær en að öllu leiti friðsamleg. Lögregla gerði enga tilraun til þess að „hafa stjórn“ á fólkinu og aldrei kom til stympinga eða átaka af nokkru tagi. Annað er lygi og verður kært til siðanefndar blaðamannafélagsins verði það ekki leiðrétt. Hafi kröfur okkar verið harðar þá stafar það af því að þarna fóru fram mótmæli gegn augljósu og óforskömmuðu ofbeldi gagnvart manneskju sem hefur ekkert til saka unnið. Manneskju sem var fangelsuð og hótað brottvísun einfaldlega vegna uppruna síns. Við erum orðin langþreytt á að horfa upp á einbeittan brotavilja yfirvalda í garð innflytjenda og reiði okkar vex með hverri handtöku, fangelsun, brottvísun, húsleit, lygi... hverju bolabragðinu sem lögreglan, UTL, innanríkisráðuneytið og dómstólar beita til þess að halda málaflokki innflytjenda og flóttamanna í föstum skorðum þjóðernishyggju, eftirlits, frelsissviptinga, forsjárhyggju, mismununar og skrifræðis... í einu orði: fasisma ríkisvaldsins. Í fréttinni var ekki vikið einu orði að ástæðunni fyrir háreistinni á mótmælunum en hún var sú að þegar við fórum fram á að fá að kynna okkur niðurstöður fundar um „stefnumótun“ í málum sem þessum var okkur neitað um það. Við teljum að sú meðferð brjóti í bága við upplýsingaskyldu opinberra stofnana og ætlum ekki að taka því þegjandi og hljóðalaust að fá ekki svör. Við óskuðum eftir því að: a) Fá að tala við einhvern sem gæti gert okkur grein fyrir niðurstöðum fundarins... b) ... að öðrum kosti fá skriflega útlistun á niðurstöðum fundarins. c) Að kröfum okkar yrði komið á framfæri við þá sem fara fyrir málaflokknum innan ráðuneytisins. Öllum þessum óskum var hafnað. Hávaði var okkar eina leið til þess að koma kröfum okkar á framfæri ef frá eru talin valdbeiting, eignaspjöll og ofbeldi - sem við beittum ekki.Leyst úr haldi „vegna stefnumótunar“ Í fréttinni er því haldið fram að ástæðan fyrir því að Izekor var leyst úr haldi eftir 7 klst. í fangaklefa hafi verið stefnumótun í ráðuneytinu í málum eins og hennar. Það liggur beint við að spyrja sig hvers vegna hún hafi yfirhöfuð verið handtekin ef engin sérstök stefna liggur fyrir. Það er vítavert af Stöð 2 að hafa ekki velt þeirri spurningu upp. Er fólk almennt handtekið án þess að fyrir því liggi skýr ástæða? Þar sem Izekor var handtekin, stefnulaust, við að fylgja fyrirmælum lögreglu verður engin betri ályktun dregin en að þarna hafi verið um geðþóttaákvörðun að ræða. Þegar við heimsóttum Útlendingastofnun um kl:14.30 í gær og gagnrýndum fangelsunina sló forstjóri stofnunarinnar upptaktinn að frelsun Izekor og benti á að þarna væri verið að„tala umklukkutíma til eða frá“. Hún ætti einmitt fund kl 15.00 í innanríkisráðuneytinu um stefnumótun í svona málum, sem hún sagði ekki hafa komið upp áður. Vissulega hafa svona mál komið upp áður, t.d. í síðustu viku þegar sýrlenski flóttamaðurinn Hassan Mahdi var sendur úr landi frá Íslenskri eiginkonu sinni. Hins vegar könnuðust starfsmenn ráðuneytisins ekkert við að Kristín ætti fund þennan dag þegar við mættum þangað til að ræða við þann sem átti að sitja fundinn fyrir hönd ráðuneytisins. Því var þó snögglega kippt í liðinn, viðmælandi var fundinn og Kristínu hleypt inn þegar hún mætti - fimmtán mínútum síðar en hún ætlaði. Það verður hreint út sagt að teljast flippað fréttamenn skuli á einu bretti: 1. Segja ósatt frá friðsamlegum mótmælaaðgerðum og úthrópa þær sem „harðar“. 2. Taka trúanlega þá eftirá skýringu að Izekor hafi verið sleppt vegna stefnumótunar, sem ekki fæst uppgefin. 3. Lepja upp yfirlýsingu Hönnu Birni Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra, um að þrýstingur í fjölmiðlum hafi ekki haft áhrif á að úrskurður í máli Izekor hafi verið dreginn til baka, þrátt fyrir að ekkert bendi til annars en að títtnefndur „stefnumótunarfundur“ hefði aldrei átt sér stað ef ekki hefði verið fyrir mótmæli og fjölmiðlaumfjöllun. Við væntum vandaðs fréttaflutnings í framtíðinni. Virðingarfyllst. No Borders – Iceland Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar