Afnám hafta gæti hafist árið 2017 Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 15. júlí 2014 20:00
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðasta mánuði, að hann hefði væntingar um að stórir áfangar yrðu stignir við afnám gjaldeyrishafta á þessu ári. Annað virðist blasa við í skýrslu Alþjóðagjaldeyrssjóðsins sem birt var nýverið. Þar kemur fram að skilyrði þess að hægt sé að afnema gjaldeyrishöft sé fækkun aflandskróna, aðgangur að erlendu lánsfjármagni, að opinber fjármál séu í jafnvægi og fjármálakerfið sterkt. Miðað við núverandi aðstæður, sé áætlað að afnám gjaldeyrishafta geti hafist árið 2017. „Nei, ég tel að það sé allt of hæg áætlun. Þeir tala um að hleypa þurfi út öllum aflandskrónueigndum áður en við hefjum almennt afnám hafta á aðra aðila. Ég tel að það gæti ekki jafnræðis á milli innlendra og erlendra aðila,“ segir Björn Brynjúlfur Björnssson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur fram að til að hægt sé að afnema gjaldeyrishöft þurfi að uppfylla fjögur skilyrði. Björn telur raunar að tvö þessara skilyrða séu nú þegar uppfyllt. Mesta óvissan sé varðandi fjórða skilyrðið – íslenskum bönkum hafi gengið illa að fjármagna sig á erlendum mörkuðum, sem geri þá óstöðugri ef til afnáms hafta kæmi. „Þar erum við kannski fyrst og fremst að tala um stöðu Landsbankans, nýja gagnvart þeim gamla. Þar er stór skuld sem ekki er búið að lengja í og nýji Landsbankinn telur sig eiga í vandræðum með að greiða í núverandi mynd,“ segir Björn. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er gengið út frá því að þrotabú föllnu bankanna geti greitt út gjaldeyriseignir sínar til kröfuhafa frá árinu 2015. Aðrir aðilar í hagkerfinu þurfi hins vegar að bíða til ársins 2017. „Þarna væri verið að mismuna aðilum innan hafta. Þrotabú gömlu bankanna eru innlendir aðilar og þau þurfa að lúta höftum eins og aðrir. Ef að stjórnvöld ákveða að hleypa þeim út á undan öðrum þá er í því falið mismunun sem íslensk fyrirtæki, lífeyrissjóðir og einstaklingar kæmu til með að tapa á,“ segir Björn.
Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira