Friðarviðræður að leysast upp Samúel Karl Ólason skrifar 10. ágúst 2014 09:52 Vísir/AFP
Sendinefnd Palestínu ætlar að yfirgefa Kaíró, muni sendinefnd Ísrael ekki snúa aftur. Ísraelsmenn segjast ekki ætla að snúa að samningsborðinu á meðan flugskeytum er skotið frá Gasa. Hamas vildi ekki framlengja tímabundið vopnahlé sem rann út í vikunni. Þeir krefjast þess að Ísrael opni landamæri Gasa. Þó sendinefnd Ísrael hafi ekki verið í Kaíró, hafi egypskir sáttasemjarar flutt skilaboð á milli deiluaðila. AP fréttaveitan segir að síðan vopnahléið var afnumið hafi tugum flugskeyta verið skotið frá Gasasvæðinu, en svo líti út fyrir að Hamas samtökin hafi ekki verið að verki. Minni samtök vígamanna hafa lýst yfir ábyrgð á árásunum. Þá hafa Ísraelsmenn sagt að landamæri Gasa verði ekki opnuð fyrr en Hamas samtökin leggi niður vopn. Hamas segja að það muni ekki gerast, en talið er að þeir eigi einhverjar þúsundir flugskeyta. Ísraelsher segist hafa gert árásir á 5.000 skotmörk og að Hamas samtökin hafi skotið rúmlega 3.000 flugskeytum að Ísrael síðan átökin hófust. Embættismenn á Gasa segja að þrír hafi látið lífið, þar af 14 ára drengur, og tólf hafi særst í loftárásum í nótt. Þá skaut floti Ísrael á fiskihöfn í Gasa í nótt þar sem eldur kviknaði í byggingu þar sem sjómenn geyma búnað sinn. Rúmlega 1.9000 Palestínumenn hafa fallið síðan átökin hófust og þar af minnst 450 börn. Þá eru börn sögð vera um einn þriðji af þeim tíu þúsund manns sem hafa slasast. Meira en tíu þúsund heimili hafa verið eyðilögð og 65 þúsund manns eru á vergangi og halda til í skjólum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa byggt.Vísir/GraphicNews
Gasa Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira