Góð Symphonía fyrir umhverfið Sigurður Oddsson skrifar 19. desember 2014 07:00 Í Fréttablaðinu (17/12) svarar Kristján Andri Jóhannsson, kynningarfulltrúi Ungra umhverfissinna, greinum mínum um plastpoka. Ég er þakklátur fyrir það og vildi gjarnan að meiri umræða væri um ýmislegt, sem ég hefi skrifað um. Það er ekki rétt að ég hafi sagt, að plasti sé blandað í maíspoka. Ég skrifaði að plastpokar væru maísmengaðir og við það stend ég. Sama hvað Íslenska gámafélagið (IG) leyfir sér að prenta á pokana. IG ætti að birta á heimasíðu sinni, hvaða efni eru í maíssterkjunni, sem pokarnir eru framleiddir úr og færa sönnur á að þeir brotni 100% niður án mengunar á 10-45 dögum. Svo er spurning, hvort þeir séu endurvinnanlegir og þá hvernig? Hér að neðan kemur fram að PMT hefur óverulega hagsmuni af sölu plastpoka, en á því kann að verða breyting. Kristján Andri bendir mér líka á að nær væri að ég beindi kröftum mínum í að finna umhverfisvænni umbúðir fyrir viðskiptavini PMT. Ég get glatt Kristján og alla þá sem bera umhyggju fyrir umhverfinu, að það er nákvæmlega það sem ég hefi gert. Í greininni hér er sagt frá umhverfisvænu plasti og vísað á heimasíður með rökstuðningi og fróðleik, sem vonandi lyftir umræðunni á hærra plan: Fáfræði í grein um útrýmingu plastpoka á Sauðárkróki pirraði mig og ég bar saman plast- og pappírspoka. Greinin vakti mikil viðbrögð. Maíspokar komu í umræðuna. Ég rifjaði upp og setti á blað það sem ég vissi um maíspoka. Viðbrögð við seinni greininni voru enn meiri, bæði jákvæð og neikvæð. Þau neikvæðu byggðust mest á fáfræði um maíspoka, sem voru sagðir 100% maís og öðruvísi framleiddir, en fyrir 40 árum. Hið rétta er að um það bil 30% maís er blandað í plastið, sem er olíuafurð. Maísinn brotnar fljótar niður en hin efnin, sem hefur í för með sér CO2- og metanmengun. Auk þess geta verið ýmis aðskotaefni í maís, hvort sem hann er erfðabreyttur eða ekki. Framleiðsla plasts hefur lítið breytzt sl. 40 ár. Einnig var því haldið fram að ég „plastpokasalinn“ ætti hagsmuna að gæta. Hið rétta er að fyrir ca 15 árum seldi ég Plastos, sem framleiddi plastpoka með yfir 100 manns í vinnu og gekk vel. PMT er mikið minna fyrirtæki, sem prentar límmiða, plastfilmu og selur plastpoka og ýmiss konar tól og tæki til iðnfyrirtækja. Sala plastpoka er innan við 10% af veltu PMT. Í viðleitni minni að Plastos kæmi með og kynnti nýjungar í umbúðum komumst við í sambandi við fyrirtækið „Symphony“, sem var að þróa umhverfisvænt plast. Uppfinning Sympony var sú að eftir ákveðinn líftíma breyttist mólekúlauppbygging plastsins þannig að plastið breyttist í efni sem brotnar niður líkt og gróður að hausti. Niðurbrotið kallast OXO-BIODEGRADABLE og er ekki síst byltingarkennt fyrir að líftími plastsins er fyrirfram ákveðinn. Skömmu áður en ég seldi Plastos sýndum við og kynntum umhverfisvæna plastpoka frá Symphony á sjávarútvegssýningunni Icefish. Það var fyrir fimmtán árum. Kynningarblöðin vöktu athygli, en tíðarandinn þá var þannig að allir vildu vera umhverfisvænir svo lengi, sem það kostaði ekkert. Í dag eru allflestir, sem betur fer, meðvitaðir um hvert stefnir í umhverfismálum. Við sannreyndum svo að síðustu pokarnir brotnuðu niður á lagernum hjá PMT. Í þessari viðleitni minni að leiðrétta misskilning á plastpokum í samanburði við aðrar umbúðir fann ég Symphony á netinu. Þar á bæ hefur melódían verið samin áfram og er orðin að meistaraverki, sem heitir d2w. Í viðbót við d2w er komin önnur melódía d2p, sem er sveppa- og bakteríudrepandi plast fyrir matvælaiðnaðinn. Drepur t.d.: MRSA, E.coli, salmonellu, listeriu, pseudomonas, og aspergillus niger. Þýska umhverfisstofnunin, Deutsche Umweltshilfe, setti fyrir nokkrum árum fram rök fyrir því að hún viðurkenndi ekki maíspoka sem umhverfisvæna. Það er ekki hægt að skýra í blaðagrein allt það sem kemur fram hér að ofan. Þeim sem vilja fræðast meira um d2w og d2p er bent á https://www.pmt.is/?c=frettir&lid=19, sem leiðir viðkomandi á heimasíðu Symphony með aðgang að niðurstöðum af rannsóknum hjá virtum stofnunum um allan heim og fréttum af umhverfismálum. Það sem kemur mest á óvart er að mörg þau lönd, sem okkar heimshluti kallar vanþróuð eru fremst í umhverfisvernd, hvað varðar plastumbúðir. Að lokum: ESB hafnaði nýlega beiðni um að banna OXO-BIODEGRADABLE plastburðarpoka. Það var mikið lán fyrir okkur, því reglugerðin hefði runnið í gegn án mikillar skoðunar, eins og byggingareglugerð ESB og margt annað okkur til tjóns. Rétt að komi fram að PMT hefur sótzt eftir að verða umboðsaðili Symphony á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun