Heildarlaun lækna eru birtingarmynd manneklu Gróa Björk Jóhannesdóttir skrifar 11. desember 2014 07:00 Ein helsta ástæða þess að íslenskir læknar eru í verkfalli og hafa boðað hertar verkfallsaðgerðir frá áramótum er skortur á nýliðun og óhófleg vinnubyrði. Tölur fjármálaráðherra sl. þriðjudag um heildarlaun íslenskra lækna eru birtingarmynd manneklu. Ef meir en helmingur launa verður til utan reglubundins vinnutíma eru læknar að vinna of mikið, en ekki að fá of há laun. Kjarabaráttan snýst um að hækka hlut dagvinnulauna, fjölga í stéttinni og draga úr vaktabyrði. Hún snýst líka um að löng menntun og stutt starfsævi sé metin til launa og að laun lækna fylgi launaþróun sambærilegra stétta. Læknum er umhugað um þróun fags, menntun næstu kynslóðar og gæði þjónustunnar. Læknum er umhugað um heilsu og vildu gjarnan fylgja ákvæðum um lögbundinn hvíldartíma. Læknum er umhugað um velferð og öryggi sjúklinga og framsækna heilbrigðisþjónustu – því eru þeir í verkfalli. Sjálf starfa ég við Sjúkrahúsið á Akureyri, sem framkvæmdastjóri sviðs, sérfræðingur í meltingarfærasjúkdómum barna og vakthafandi barnalæknir á víxl. Ég kæri mig ekki um 10 eða fleiri sólarhringsvaktir í mánuði ofan á fullt dagvinnustarf, hvorki fyrir mig né samstarfsmenn mína. Mín krafa er að Sjúkrahúsið á Akureyri fái ráðrúm til að vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir næstu kynslóð lækna – sérfræðinga og almennra lækna – með samkeppnishæfum launum og vinnuálagi. Til þess að þetta verði raunin verður að leiðrétta kjarasamninga og fjölga í liðinu. Þið vitið hver er með boltann. Hann þarf að forðast að láta reka sig af velli vegna leikbragða og tafa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Ein helsta ástæða þess að íslenskir læknar eru í verkfalli og hafa boðað hertar verkfallsaðgerðir frá áramótum er skortur á nýliðun og óhófleg vinnubyrði. Tölur fjármálaráðherra sl. þriðjudag um heildarlaun íslenskra lækna eru birtingarmynd manneklu. Ef meir en helmingur launa verður til utan reglubundins vinnutíma eru læknar að vinna of mikið, en ekki að fá of há laun. Kjarabaráttan snýst um að hækka hlut dagvinnulauna, fjölga í stéttinni og draga úr vaktabyrði. Hún snýst líka um að löng menntun og stutt starfsævi sé metin til launa og að laun lækna fylgi launaþróun sambærilegra stétta. Læknum er umhugað um þróun fags, menntun næstu kynslóðar og gæði þjónustunnar. Læknum er umhugað um heilsu og vildu gjarnan fylgja ákvæðum um lögbundinn hvíldartíma. Læknum er umhugað um velferð og öryggi sjúklinga og framsækna heilbrigðisþjónustu – því eru þeir í verkfalli. Sjálf starfa ég við Sjúkrahúsið á Akureyri, sem framkvæmdastjóri sviðs, sérfræðingur í meltingarfærasjúkdómum barna og vakthafandi barnalæknir á víxl. Ég kæri mig ekki um 10 eða fleiri sólarhringsvaktir í mánuði ofan á fullt dagvinnustarf, hvorki fyrir mig né samstarfsmenn mína. Mín krafa er að Sjúkrahúsið á Akureyri fái ráðrúm til að vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir næstu kynslóð lækna – sérfræðinga og almennra lækna – með samkeppnishæfum launum og vinnuálagi. Til þess að þetta verði raunin verður að leiðrétta kjarasamninga og fjölga í liðinu. Þið vitið hver er með boltann. Hann þarf að forðast að láta reka sig af velli vegna leikbragða og tafa.
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun