Er Vatnsmýrin í miðbæ Reykjavíkur? Ólafur Þórðarson skrifar 4. desember 2014 00:00 Oft heyrir maður því haldið fram að Vatnsmýrin sé í miðbæ Reykjavíkur. Ég hef áhuga á að skoða hér hvort þetta sé rétt fullyrðing. Hún kemur kannski til af því að flest fólk höfuðborgarsvæðisins býr í úthverfum og er eðlislægt að skilgreina borg út frá eigin (bíla) umhverfi. Ég gerði þetta sjálfur þar sem ég er alinn upp í Hvassaleiti – ágætu dæmi um úthverfaskipulag, sem er ekki í miðbænum. Miðbær og úthverfaskipulag eru ólíkir hlutir. Við nánari skoðun á byggðarmynstri sést vel að eiginlegt miðbæjarskipulag er í raun í kvosinni og upp Laugaveginn og í nærliggjandi götum, s.s. Skólavörðustíg og ýmsum hlutum Vesturbæjar. Þau eru mörg millisvæðin en ég set hér fram smá útskýringarmynd (MYND 1) til að sýna ílanga legu sjálfs miðbæjarins. Áhugaverðast finnst mér að skoða (labba eða hjóla) leiðina sem tengir Lækjartorg við Hlemm annars vegar og svo leiðina Lækjartorg að BSÍ hins vegar. Önnur leiðin er borgarskipulag, þar sem fjölbreytileiki, smágerð byggð og þétt er alla leið. Mikið er af fólki á ferð í erindagjörðum og stærðargráður byggðar, almennt séð, eru viðeigandi, mótar skýrar borgargötumyndir og viðheldur þjónustu við gangstétt og þar fram eftir götum. Þessi leið tengir saman borgarhluta með gangvænni þéttri blandaðri byggð. Hún endar einnig í grófum dráttum þar sem við tekur úthverfaskipulag eftirstríðsáranna austur fyrir og upp um fyrrum sveitir. „Ég lít til að mynda þannig á að austan Rauðarárstígs sé Reykjavík varla eiginleg borg heldur meira og minna slitrótt samansafn úthverfa.“ (Ó.Þ. Mbl. 21.12.1997)Lækjartorg-BSÍ Hin leiðin, sem liggur í grófum dráttum að BSÍ, liggur fyrst í gegnum borgarskipulag öðrum megin götunnar, þ.e. Lækjargötu. Þá tekur við Tjörnin og svo Sóleyjargata þar sem er garður öðrum megin og tiltölulega dreift skipulag húsa austan megin götu. Byggðamynstur er í grófum dráttum áþekkt Hlíðunum eða á Melunum. Lítil sem engin þjónusta eða búðir eru á þessari leið, en Hljómskálagarður og Tjörnin gegna sínu ágæta hlutverki að vera andsvar borgarbyggðar. Þegar komið er að BSÍ blasir við nýlega útfært en berangurslegt svæði sem hefur í raun lítið sem ekkert með miðborg að gera, en er meira skylt kappakstursbrautum og bílastæðaflæmum og þjónustu við bíla fram yfir gangandi, en sinnir þó hjólandi að einhverju leyti.Svipuð vegalengd En þegar göngu okkar lýkur við Hlemm eða BSÍ getum við mælt leiðirnar og borið saman vegalengdina. Í ljós kemur að Lækjartorg-Hlemmur eru 1,2 km í ríkulegu borgarumhverfi. Leiðin að BSÍ er afar ólík og alls ekki „miðbær“ nema á takmörkuðum kafla þ.e. fyrstu 250 metrana næst Lækjartorgi. Þessi leið, sem er nærri jafnlöng öllum miðbæjarkjarnanum er einnig um 1,2 km, en liggur beint í burtu frá miðbænum sem er mjór og ílangur. Þrjár aðrar mögulegar tengingar eru frá miðbænum í Vatnsmýrina. Ein er Njarðargata. Hún er með ansi laglegri þéttri húsabyggð efst á Skólavörðuholtinu, enda prýði Reykjavíkur á póstkortum. En brött er hún að fara sem bein tenging og vegna legu landsins ekki aðgengilegasta leiðin í miðbæinn. Barónsstígur er önnur möguleg tenging sem vert er að skoða – miðborgarumhverfið sem slíkt er að mestu norðan við Sundhöllina og/eða Austurbæjarskólann. Fjórða tengingin er Snorrabraut. Þegar ég sleit barnskónum tengdist hún með hringtorgi við Miklubraut og þaðan beint ofan í Vatnsmýri. Í dag liggur Snorrabraut beint í hraðbrautarslaufu og þá upp á Bústaðaveg. Þessi mannvirki koma í veg fyrir viðburðaríka beina gangandi borgartengingu frá Vatnsmýri yfir á miðbæjarsvæðið sem við Snorrabraut má segja að sé í og fyrir norðan Mjólkursamsöluna gömlu og Austurbæjarbíó.Niðurstaða Með þessari samantekt er ég að sýna fram á að Vatnsmýrin er ekki í miðbæ Reykjavíkur og byggð þar yrði sem sagt ekki í miðbæ Reykjavíkur. Ég dreg af ofangreindu þá ályktun að fullyrðingin sé beinlínis röng. Bæði er töluverður spotti að miðbænum (1,1-2 km) og ýmsar hindranir landfræðilegar og í formi mannvirkja, sem ekki styðja þessa tegund borgartengingar. Ég fæ ekki séð að hægt sé að tengja saman Vatnsmýrina og miðbæinn með „borgargötum“ nema til komi niðurrif á bæði nýlegum mannvirkjum og róttækum en vel ígrunduðum breytingum á gömlum grónum hverfum. Hins vegar mætti vel færa rök fyrir því að Vatnsmýrin yrði í úthverfaklasa Reykjavíkur, rétt eins og Hlíðarnar og Melahverfin sitt hvorum megin við svæðið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Hvers virði er sérfræðiþekking? Sérkennarar hér á landi búa við þá einkennilegu stöðu að hafa sérhæft sig í sérkennslufræðum án þess að njóta lögverndunar starfsheitis. Félag íslenskra sérkennara hefur um árabil unnið að því að fá lögverndun á starfsheitinu sérkennari eða sérkennslufræðingur 4. desember 2014 09:45 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Sjá meira
Hvers virði er sérfræðiþekking? Sérkennarar hér á landi búa við þá einkennilegu stöðu að hafa sérhæft sig í sérkennslufræðum án þess að njóta lögverndunar starfsheitis. Félag íslenskra sérkennara hefur um árabil unnið að því að fá lögverndun á starfsheitinu sérkennari eða sérkennslufræðingur 4. desember 2014 09:45
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun