Stöndum saman Bergsteinn Jónsson skrifar 24. október 2014 07:00 „Hvernig get ég útskýrt dauðann fyrir þeim þegar ég skil hann ekki einu sinni sjálf?“ Þessu veltir 15 ára stúlka í Síerra Leóne fyrir sér eftir að yngri systkini hennar spyrja hvar foreldrar þeirra séu. Foreldrar barnanna létust úr ebólu. Systkinin fimm eru nú munaðarlaus. Enginn ættingja þeirra þorir að taka börnin að sér af ótta við að smitast af þessari lífshættulegu veiru. Ebólufaraldurinn sem nú geisar í Vestur-Afríku er ein stærsta áskorun sem UNICEF og heimsbyggðin öll hefur staðið frammi fyrir á undanförnum árum. Við fáum ógnvænlegar fréttir af baráttu barna í samfélögum sem fyrir áttu erfitt uppdráttar. Í hverri viku hækka tölur sýktra og látinna í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne. Heilsugæslustöðvar eru yfirfullar, skólar lokaðir, samfélagið lamað. En það er von. Við vitum að hér er ekki við ofurefli að etja þó faraldurinn nú sé sá stærsti og útbreiddasti í sögunni. Við höfum áður sigrast á ebólu og vitum hvað þarf að gera til að ráða niðurlögum veirunnar. En til þess þurfum við hjálp og því hefur UNICEF á Íslandi blásið til neyðarsöfnunar til að efla aðgerðir gegn ebólufaraldrinum. UNICEF hefur starfað áratugum saman í Vestur-Afríku og verið til staðar áður, á meðan og eftir að neyðarástand brestur á, hvort sem er vegna átaka, náttúruhamfara eða sjúkdóma. Í neyð eru það alltaf börnin sem verða verst úti. Þau eru fyrst til að sýkjast og deyja, ringulreið, missir og ótti setja velferð þeirra og framtíð í hættu. Á örskotsstundu fáum við fréttir af atburðum frá öðrum löndum. Heimurinn er að minnka og atburðir í einni heimsálfu hafa áhrif á gang mála í annarri. Við erum í þessu saman. Við verðum að styðja hvert annað, vinna saman og hjálpa þeim sem á þurfa að halda. Viðvörunarbjöllum hefur verið hringt. Hvert einasta framlag skiptir sköpum við að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu ebóluveirunnar. Tökum öll þátt í baráttunni og verjum réttindi, líf og velferð barna heimsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
„Hvernig get ég útskýrt dauðann fyrir þeim þegar ég skil hann ekki einu sinni sjálf?“ Þessu veltir 15 ára stúlka í Síerra Leóne fyrir sér eftir að yngri systkini hennar spyrja hvar foreldrar þeirra séu. Foreldrar barnanna létust úr ebólu. Systkinin fimm eru nú munaðarlaus. Enginn ættingja þeirra þorir að taka börnin að sér af ótta við að smitast af þessari lífshættulegu veiru. Ebólufaraldurinn sem nú geisar í Vestur-Afríku er ein stærsta áskorun sem UNICEF og heimsbyggðin öll hefur staðið frammi fyrir á undanförnum árum. Við fáum ógnvænlegar fréttir af baráttu barna í samfélögum sem fyrir áttu erfitt uppdráttar. Í hverri viku hækka tölur sýktra og látinna í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne. Heilsugæslustöðvar eru yfirfullar, skólar lokaðir, samfélagið lamað. En það er von. Við vitum að hér er ekki við ofurefli að etja þó faraldurinn nú sé sá stærsti og útbreiddasti í sögunni. Við höfum áður sigrast á ebólu og vitum hvað þarf að gera til að ráða niðurlögum veirunnar. En til þess þurfum við hjálp og því hefur UNICEF á Íslandi blásið til neyðarsöfnunar til að efla aðgerðir gegn ebólufaraldrinum. UNICEF hefur starfað áratugum saman í Vestur-Afríku og verið til staðar áður, á meðan og eftir að neyðarástand brestur á, hvort sem er vegna átaka, náttúruhamfara eða sjúkdóma. Í neyð eru það alltaf börnin sem verða verst úti. Þau eru fyrst til að sýkjast og deyja, ringulreið, missir og ótti setja velferð þeirra og framtíð í hættu. Á örskotsstundu fáum við fréttir af atburðum frá öðrum löndum. Heimurinn er að minnka og atburðir í einni heimsálfu hafa áhrif á gang mála í annarri. Við erum í þessu saman. Við verðum að styðja hvert annað, vinna saman og hjálpa þeim sem á þurfa að halda. Viðvörunarbjöllum hefur verið hringt. Hvert einasta framlag skiptir sköpum við að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu ebóluveirunnar. Tökum öll þátt í baráttunni og verjum réttindi, líf og velferð barna heimsins.
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun