Útrýming lömunarveiki Rannveig Gunnarsdóttir skrifar 24. október 2014 07:00 Lömunarveiki er sársaukafullur og langvinnur sjúkdómur sem leggst einna helst á ung börn og getur leitt til dauða eða afleiðinga sem sjúklingurinn finnur fyrir alla ævi. Síðasti faraldur lömunarveiki, sem einnig er nefnd mænusótt, gekk yfir Ísland snemma á 6. áratugnum, en eftir að farið var í bólusetningarátak tókst að útrýma henni hér á landi en síðustu tilfellin greindust 1960. Stór áfangi náðist þegar tókst að útrýma lömunarveiki á Indlandi árið 2012 og ekki hafa greinst ný tilfelli síðan þá. Í dag eru það einungis þrjú lönd í heiminum, Nígería, Afganistan og Pakistan, þar sem lömunarveiki hefur ekki verið útrýmt. Nokkur hundruð einstaklingar greinast með lömunarveiki í heiminum nú, en það er nokkrum hundruðum of margir, og enn getur veikin gosið upp aftur ef smit nær að breiðast út. Útrýming lömunarveiki er mikilvægt og erfitt verkefni en ein helsta hindrunin er fáfræði. Verkefnið er ekki vonlaust og má þar benda á frábæran árangur við útrýmingu bólusóttar í heiminum.Rótarý hefur beitt sér Rótarýhreyfingin hefur um árabil stutt við það göfuga verkefni að útrýma lömunarveiki í heiminum. Þá er ekki eingöngu um fjárframlag Rótarýfélaga að ræða, heldur hafa þeir sjálfir tekið þátt í að bólusetja börn í bólusetningarátakinu þar á meðal íslenskir Rótarýfélagar á Indlandi. Rótarýhreyfingin kemur einnig að stýringu fjármögnunar átaksins. Verkefnið Útrýmum lömunarveiki hefur raunar verið aðalverkefni Rótarýsjóðsins um árabil. Árið 2012 var gert sérstakt átak til að auka framlag í verkefnið og átti það að vera lokaárið. Því miður kom í ljós að ætlunarverkinu var ekki lokið þá, enda erfitt að ná til landa þar sem ófriður ríkir og stjórnskipulag er í molum. Því var tekin sú ákvörðun að Rótarý skyldi halda áfram að styrkja þá aðila sem berjast við að halda úti bólusetningum í þessum löndum.Samstarf margra Rótarýhreyfingin er í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina (WHO), UNICEF, Center of infectious Diseases (CID) og sjóð Bill og Melindu Gates. Á Íslandi hafa UNICEF og Te og kaffi stutt átakið um að útrýma lömunarveiki auk Rótarý. Ástæða þess að Bill og Melinda Gates hafa ákveðið að styrkja þetta verkefni Rótarýsjóðsins er einfaldlega sú að þau hafa sannreynt að peningarnir eru nýttir í verkefnið. Enn er þörf á að vekja athygli á verkefninu og því ákvað Rótarýhreyfingin að 24. október 2014 yrði dagur átaksins „Útrýming lömunarveiki“ (End Polio Now). Margir Rótarýklúbbar í heiminum hafa skipulagt viðburði og hyggjast vekja athygli fjölmiðla og vera með söfnunarátak. Rótarýumdæmið á Íslandi hvetur alla klúbba innan sinna vébanda, og raunar alla Íslendinga, til að leggja sitt af mörkum svo útrýma megi þessum skelfilega sjúkdómi. Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum geta haft samband við Rótarýumdæmið á Íslandi, í rotary@rotary.is. Meiri fróðleik um átakið má finna á vefsíðunum http://www.endpolio.org/ og www.polioeradication/Dataandmonitoring Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar