förðundjarfir augnskuggar og falleg húð 26. september 2014 10:58 Margrét R. Jónasar, eigandi Make Up Store á Íslandi.
Margrét R. Jónasardóttir, förðunarmeistari og eigandi Make Up Store á Íslandi, er ein sú allra reyndasta í förðuninni hér heima. Hún fylgist alltaf vel með förðuninni á tískuvikunni og því sem er heitast hverju sinni. Rauðar varir Auðveldasta leiðin til að uppfæra snyrtibudduna er að fjárfesta í djúprauðum varalit. Það allra vinsælasta á litaskalanum fyrir haustið eru dökkrauðir, burgundy og vínrauðir litir. Tískuhús eins og Antonio Marras, Zac Posen og Ralph Lauren sýndu skemmtilegt litróf í rauðum varalitum. Málmgljáaáferð og glimmer verður afgerandi í haust fyrir augu, neglur og varir. Þá er frábært að nota Mixing Liquid-vökvann í augnskugga og augnskuggaduft til að framkalla þessa málmkenndu áferð á augu og á varir. Einnig til að festa glimmer á augu eins og á tískusýningu Altuzarra. Djarfir litir Augnskuggarnir eru að breytast og það eru að koma inn meiri litir eins og bláir, grænir, fjólubláir og appelsínugulir eins og sáust á tískusýningarpöllunum hjá Burberry og Kenzo í vetur. Uppáhaldslitirnir hjá mér núna eru rauðbrúnir, ljósvínrauðir eins og Louder, Strong og Hero frá Make Up Store. Falleg húð og „highlight“ Lýtalaus ljós postulínsáferð á húð eins og hjá hönnuðum eins og Givenchy, Alexander McQueen og Akris. Base Prep-grunnurinn frá Make Up Store er upplagður til að ná fram þessari frísklegu áferð. Endingin á farðanum verður enn betri þegar Base Prep er sett undir. Ofan á farðann er fallegt að bera á Illuminizer og „highlight”-tríóið Þóra Kristín Þórðardóttir,förðunarfræðingur hjá MAC Debenhams var að vinna á tískuvikunni í Danmörku. Vel nærð og falleg húð Það sem mér fannst mest áberandi var vel nærð húð. Við notuðum til dæmis Mineralized Moisture Gel-kremið frá MAC og Moisture Infusion-serumið, en það gefur svakalega góðan raka og næringu. Mineralized Moisture-farðinn var mest áberandi en hann gefur fallega „döggvaða“ húð með perluáferð og með honum Mineralized-hyljararnir. Mjúkir kremlitir og „smokey“ Allar kremaðar vörur koma sterkar inn bæði á kinnar og augu. Creamcolour base og Paint pot verða vinsæl í öllum litum á augu og kinnar og sem „highligt“. BB-bronzerarnir frá MAC eru snilld til þess að ná fram mjúkri skyggingu á andlitið. Á augum var mikið um „smudgy smokey“ og gloss á augnlok. Þetta týpíska bjútíútlit er á útleið, og nú er eyelinerinn orðinn mýkri og blýantar mikið notaðir. Stórar og náttúrulegar augabrúnir Augabrúnir spila stórt hlutverk í haust og fer meiri tími í þær nú en áður. Þær eiga að vera náttúrulegar, fallega mótaðar með örlítið ljósari augabrúnablýant en þínar brúnir. Við erum með mikið úrval af litum hjá okkur en svo er trixið að nota augabrúnagel í aðeins dekkri tón til þess að fá þrívíddarhrif á brúnirnar. Mattar varir og varablýantar Það sem kemur svo sterkt inn í vetur eru 90‘s-varir, sem þýðir blýantar með öllum litum alltaf! Brúnir og drappir mattir tónar eru allsráðandi. Á Fashion week voru mjúkar og glansandi varir líka mjög áberandi.Vísir/Getty
Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Fleiri fréttir Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors Sjá meira