Í eigu sömu ættar í heila öld Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. september 2014 10:45 "Við notuðum tækifærið og þrifum aðeins kringum okkur áður en við buðum fólki til okkar. Það var viss ávinningur,“ segir Sigurgeir. Myndir/Auðunn „
Við ætlum að vera með opið hús fyrir bæjarbúa og nærsveitamenn milli klukkan 11 og 15 í dag og leyfa fólki að sjá hvernig svona smiðja lítur út. Þetta er gott tilefni,“ segir Sigurgeir Steindórsson, framkvæmdastjóri Vélsmiðju Steindórs á Akureyri, um hátíðahöld í tilefni hundrað ára afmælis fyrirtækisins. „Við notuðum tækifærið og þrifum aðeins í kringum okkur áður en við buðum fólki til okkar. Það var viss ávinningur,“ segir hann glaðlega og kveðst líka hafa viðað að sér veisluföngum, pylsum og tertum og einhverju til að skola því niður með. Vélsmiðja Steindórs er við Frostagötu 6a. Hún er eitt elsta starfandi málmiðnaðarfyrirtæki á Íslandi og hefur alltaf verið rekin af sömu fjölskyldu. Kennitalan hefur líka verið sú sama frá því þær tölur voru teknar upp. „Smiðjan hefur gengið mann fram af manni innan sömu ættar og það er svolítið sérstakt í okkar þjóðfélagi því oft brýtur á þriðju eða fjórðu kynslóð,“ segir Sigurgeir.Helgi Helgason, Böðvar Ingvason, Sigurgeir, Valur Sigurgeirsson og Guðbrandur Torfi Thoroddsen. Mynd/Auðunn„Margir lenda í því að enginn er til að taka við fyrirtækjum eða búum. Nú erum við komin með fjórðu kynslóð hér inn sem er að taka við, þannig að það er framtíð í þessu.“ Sigurgeir tekur fram að Vélsmiðja Steindórs sé hvorki stórt fyrirtæki né áberandi í samfélaginu en standi þó alveg fyrir sínu. „Þetta er alvöru fyrirtæki og við erum stolt af því,“ tekur hann fram og segir alltaf nóg að gera fyrir þann fjölda sem þar vinni. „Við erum sex til átta að öllu jöfnu og þannig hefur það verið síðustu tíu, tuttugu ár. Það er þægileg stærð og hentar okkur ágætlega. Ég er þakklátur öllum sem hafa starfað hér og ávallt skilað vel unnum verkum, meðal annars í þeim smíðisgripum sem frá okkur hafa farið. Þeir hafa gert fyrirtækið að því sem það er í dag.“ Sigurgeir segir Vélsmiðjuna hafa möguleika til stækkunar á þeirri lóð sem hún sé með og býst við að lóðin verði nýtt hvað úr hverju. „Við erum samt ekki með nein stórvægileg útþenslumarkmið,“ segir hann. „Ætlum bara að halda áfram.“Vélsmiðja Steindórs og starfsmenn hennar á árum áður.Upphafið Um aldamótin 1900 kom til Akureyrar ungur Skagfirðingur sem fýsti ekki að fara í búskap en langaði að læra járnsmíði og hafði hann fengið pláss hjá Sigurði Sigurðssyni járnsmið. Hann hét Steindór Jóhannesson og var fæddur árið 1883. Eftir framhaldsnám í Danmörku í vél- og rennismíði kom Steindór heim og byrjaði að setja niður nýjar tóvinnuvélar í Gefjun. Síðla árs 1914 stofnaði hann, ásamt konu sinni, Sigurbjörgu Sigurbjarnardóttur, járnsmíðaverkstæði á Torfunefi. Verkefnin voru fjölbreytt; skipaviðgerðir, gufuvélaviðgerðir og þjónusta við bændur. Vöxtur fyrirtækisins kallaði á stærri húsakost og nýtt verkstæði var byggt á horni Strandgötu og Kaldbaksgötu um 1930. Þar var vélsmiðjan til 1981.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira