Sápa úr salti Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 15. september 2014 10:00 Thelma Hrund Benediktsdóttir bjó til sápu úr salti sem lokaverkefni frá LHÍ. myndir/úr einkasafni
Mig langaði til að sjá hvernig salt væri búið til og skoðaði saltverksmiðjuna á Reykhólum, Norðursalt. Meðan eigendurnir útskýrðu fyrir mér vinnsluferlið rak ég augun í litla fötu úti í horni og spurði hvað væri í henni. Það var afgangssalt sem ekki er nýtt í framleiðsluna þar sem það er ríkara af magnesíum og því öðruvísi á bragðið. Ég ákvað að finna þessu afgangssalti tilgang.“ Þannig lýsir Thelma Hrund Benediktsdóttir vöruhönnuður upphafinu á lokaverkefni sínu frá Listaháskóla Íslands en hún útskrifaðist síðastliðið vor. Lokaverkefnið varð húðsápa úr náttúrulegum efnum sem nánast öll falla til við aðra framleiðslu.Thelma nýtti afgangshráefni sem féll til við aðra framleiðslu í sápugerðina.„Ferlið var í raun tilviljunarkennt og eitt leiddi af öðru en þó liggur mikil rannsókn að baki. Ég var ekki alltaf að hugsa um sápu sem lokaafurð, það er margt annað hægt að gera við salt en við saltframleiðsluna á Reykhólum er heita vatnið sem kemur frá þörungaverksmiðjunni við hliðina nýtt og þegar búið er að nýta vatnið í saltframleiðsluna er það fimmtíu gráðu heitt en það er akkúrat hitinn sem þarf til að búa til sápu. Í sápugerð þarf einnig vítissóda en hann get ég búið til úr salti. Þetta vann því allt saman.“Thelma sýndi framleiðsluferlið við sápugerðina á útskriftarsýningunni í vor og stillti meðal annars hráefnunum upp á borð.Sápan inniheldur tólg, þörunga, salt og repjuolíu en repjuolían er eina efnið sem ekki er frá Reykhólum. „Ég nota bæði harða og mjúka fitu í sápuna, repjuolíu sem kemur frá Þorvaldseyri fyrir austan. Ég er að vinna í því að finna leið til að geta notað hráefni sem öll koma frá Reykhólum. Í framhaldinu væri draumurinn að sápan yrði aukaframleiðsluvara í saltverksmiðjunni þar sem hægt væri að nýta hluti sem eru til staðar en ekki nýttir sem stendur,“ útskýrir Thelma.
Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Fleiri fréttir Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors Sjá meira