Ætlar að stofna Gleðilegt nýtt hár Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. september 2014 11:30 "Þegar ég var nýorðin fimm ára fékk Tommi í Stuðmönnum mig til að syngja og spila á píanó á afmælistónleikum Pauls McCartney." segir Jarún Júlía. Fréttablaðið/Ernir Eyjólfsson
Jarún Júlía sló í gegn á Stuðmannatónleikunum um síðustu helgi og er því spurð:Hvernig fannst þér að koma fram á Stuðmannatónleikum? „Það var mjög gaman. Ég hef aldrei sungið með þeim áður.“Hefur þú sungið áður fyrir framan fullt af fólki? „Já, já, oft. Þegar ég var nýorðin fimm ára fékk Tommi í Stuðmönnum mig til að syngja og spila á píanó á afmælistónleikum Paul McCartney sem hann var að skipuleggja í Eldborg í Hörpunni. Það var bara gaman. Svo var ég líka að syngja og dansa í jólaleikriti Skoppu og Skrýtlu í Borgaleikhúsinu um síðustu jól og verð þar aftur núna um jólin.“Hvaða lag finnst þér skemmtilegast að syngja? „Halo með Beyoncé.“Ertu byrjuð í tónlistarskóla? „Ég hef verið hjá Hönnu Valdísi í Suzuki-skólanum síðan ég var fjögurra ára að læra á píanó og á sumrin verið bæði hjá henni og Þorbjörgu í Retro Stefson. Mér finnst gaman að læra á píanó.“Áttu þér eftirlætis tónlistarmann/konu? „Það eru pabbi (Jakob Frímann) og Katy Perry.“Hvernig leikur þú þér oftast? „Ég föndra mjög mikið.“ Upplifðir þú eitthvert ævintýri í sumar (ferðalag? námskeið? útilegu?) „Ég fór í ferðalag með skólanum í vor upp í Vindáshlíð og við gistum þar í tvær nætur, líka á afmælisdaginn minn 19. maí. Svo ferðaðist ég um Ítalíu í sumar, það var æðislega gaman.“Í hvaða skóla ertu? „Ég er í Barnaskólanum í Reykjavík, rétt hjá Nauthólsvík og Háskólanum í Reykjavík. Þetta er svona Hjallastefnuskóli, mjög fínn.“Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Ég ákvað þegar ég var fjögurra ára að stofna hárgreiðslustofuna Gleðilegt nýtt hár. Á skiltinu á líka að standa Happy new hair fyrir útlendingana. Stofan á að vera á efri hæð í miðbænum og á neðri hæðinni verður veitingastaður. Pabba og mömmu fannst þetta dálítið skrítin hugmynd hjá mér en mér finnst hún bara sniðug.“
Mest lesið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Fleiri fréttir Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Sjá meira