Verðlaunaféð komið yfir tíu milljónir Gunnar Leó Pálsson skrifar 13. september 2014 10:00 Friðrik Þór Friðriksson og Benedikt Erlingsson. vísir/vilhelm „
Hún hefur unnið til þó nokkurra verðlauna, ég hugsa að heildarverðlaunaféð hingað til sé yfir tíu milljónir en af því fáum við bara helminginn, því hinn helmingurinn fer til dreifingaraðila. Aðalatriðið er þó heiðurinn að fá að komast inn á hátíðir,“ segir Friðrik Þór Friðriksson, framleiðandi kvikmyndarinnar Hross í oss, en myndin hefur farið sigurför um heiminn. Myndin hefur hlotið yfir tuttugu verðlaun á kvikmyndahátíðum um heim allan, sem hefur skilað henni yfir tíu milljónum króna í verðlaunafé, en hún á þó enn eftir að fara á nokkrar hátíðir sem gætu gefið peningaverðlaun. „Við verðum á Norrænu kvikmyndaverðlaununum og þar eru peningaverðlaun í boði en sigurvegarinn verður tilkynntur 23. október að ég held. Svo komum við til greina á kvikmyndaverðlaunum Evrópu en íslenskum myndum hefur ekki gengið vel þar því þar er helst kosið eftir þjóðerni en það er samt sem áður heiður að komast þangað,“ útskýrir Friðrik Þór. Hann segir þó að yfirleitt séu ekki veitt peningaverðlaun á kvikmyndahátíðum en að hann hafi þó sett upp plan sem gengið hafi eftir. „Það er nokkrar stórar hátíðir sem gefa peningaverðlaun. San Sebastian-hátíðin á Spáni er ein af þeim hátíðum sem gefa góðan pening og unnum við til verðlauna þar. Það voru um 70.000 evrur sem myndin fékk en sá peningur skiptist svo á milli dreifingaraðila á Spáni og leikstjóra.“ Myndin hefur fengið góða dóma í löndum á borð við Frakkland, Danmörku, Mexíkó, Noreg og Spán en myndin hefur verið sýnd í kvikmyndahúsum í þessum löndum. „Hún er svo að fara í sýningu í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Austurríki á næstunni.“ Friðrik Þór segist þó hafa búist við þessari velgengni um leið og hann sá myndina í fyrsta sinn og sama má segja um leikstjóra myndarinnar, Benedikt Erlingsson. „Ég bjóst við að ef þetta tækist gæti allt gerst, en þetta hefur verið mikið ævintýri og ég er mjög þakklátur. Ég er bara byrjandi og þekki ekki annað, ætli það fari ekki allt niður á við núna,“ segir Benedikt og hlær. „Benni er unglingur og rétt búinn að missa bleyjuna, hans ævintýri er langstærsta ævintýri íslensks kvikmyndaleikstjóra, engin fyrsta mynd hefur notið svona rosalegrar velgengni,“ bætir Friðrik Þór við. Hross í oss er enn í sýningu í Bíói Paradís. gunnarleo@frettabladid.isBenedikt Erlingsson leikariKutxa-New Directors Award, San Sebastian Film festival 2013.Best Direktor, Tokyo Film Festival 2013Prix de la Ville d’Amiens. Amiens Film festival 2013Prix d’interprétation feminine (besta leikkonan) Amiens Film festival 2013The Grand Jury Prize Les Arcs festival 2013The Prize for the Best Music Les Arces Festival 2013The Youth prize, Tarragona Film festival 2013Tridens Competition; Best Film of Feature Debuts, Tallinn Film festival 2013The International film critics FIPRESCI AWARD, Tallinn Film festival 2013Best cinemaphotagrafer, Tallinn Film festival 2013The Audians Prize, Tromsø Film festival 2014The Dragon award Best Nordic Film, Audience choice. Göteborg filmfest 2014The International film critics FIPRESCI AWARD, at the festival of Göteborg 2014Politikens Puplikums CPH PIX 2014Grand prix Aubagne International filmfest 2014Grand Prix de la Meilleure Musique Originale 2014 (Aubagne)Golden Iris Award: Brussel filmfestival 2014.6 Eddur:Besta myndBesta handritBesti leikstjóriBesta kvikmyndatakaBesti karlleikar í aðalhlutverkiBestu brellurFriðrik Þór Friðriksson leikstjórivísir/stefánFriðrik Þór og Benedikt furða sig báðir á sinnuleysi stjórnvalda í garð kvikmyndagerðar. „Kvikmyndasjóður er tómur núna, menn fá ekki einu sinni handritsstyrk. Það er skandall að menn fái ekki byr undir báða vængi þegar þeir hafa sannað sig eins og Benni. Hagkerfið snýst um túrisma en túrisminn er til sökum innlendrar og erlendrar kvikmyndagerðar hér á landi,“ segir Friðik Þór. „Ef kvikmyndagerðarmaður fær eina krónu í styrk frá ríki til að búa til íslenska bíómynd þarf hann að sníkja aðrar tvær, td. frá útlöndum, til að geta gert myndina. Öllum krónunum þremur eyðir hann í launagreiðslur á íslenska efnahagssvæðinu. Og öll vitum við hvað það þýðir fyrir ríkisjóð. Út úr þessu verður til hugverk sem selur skattlagða bíómiða og að lokum ef vel tekst til selur hann myndina til útlanda og fær útlenskar krónur sem koma heim í vasa kvikmyndgerðarmannsins eftir herraklippingu hjá ríkinu. Nokkurn veginn á þessum grunni hvílir kenning Kanadamanna um að fyrir hverja eina krónu sem ríkið styrkir kvikmyndagerð fær það 4 til baka. Við þetta má svo bæta seldum flugferðum og gistinóttum sem aukaafurð af íslenskri kvikmyndagerð. Hross í oss er ein af mörgum íslenskum kvikmyndum sem hafa dregið túrista til landsins í massavís,“ segir Benedikt.
Mest lesið „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Lífið Bakaríið í beinni Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn Sjá meira