Mikið kapp í fólki og margir hlaupagikkir 10. september 2014 14:00 Það er mikil stemning fyrir Tour de Marel enda margir ofurhlauparar hér innan húss,“ segir Auðbjörg. Fréttablaðið/ Ernir Eyjólfsson
Þetta er í þriðja sinn sem Tour de Marel-dagurinn er haldinn en í annað sinn sem allir 4000 starfsmenn Marels víðsvegar um heiminn safna fyrir SOS barnaþorpið í Yamoussoukro á Fílabeinsströndinni, segir Auðbjörg Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Marel. „Í fyrra söfnuðum við 75 þúsund evrum eða ellefu og hálfri milljón sem fór í byggingu grunnskóla. Hann verður opnaður núna 15. september og söfnunin í ár fer í að styðja við rekstur og starfsemi skólans. Það þarf meira en þak og veggi, það þarf líka að borga laun kennara og ýmis aðföng og við efumst ekkert um að þeir peningar sem við öflum verði vel nýttir.“ Auðbjörg segir stefnt að því að hlaupa 6.500 kílómetra. Það svari til leiðarinnar til Fílabeinsstrandarinnar en hlaupinn verði fimm kílómetra hringur í Heiðmörkinni. Margir leggist þar á eitt. „Það er mikil hlaupamenning hér innan fyrirtækisins og nú er verið að skora á ýmsa að hlaupa ákveðið marga hringi – einhverjir ætla að reyna að ná 50 kílómetrum, það er mikið kapp í fólki. Kári Steinn Karlsson ofurhlaupari ætlar að starta hlaupinu með okkur klukkan 10.30 á föstudaginn og svo ætlar hann að koma aftur síðdegis og taka nokkra hringi en hlaupið stendur í sólarhring.“ Um 30% barna á Fílabeinsströndinni eru munaðarlaus, að sögn Auðbjargar. Það er afleiðing alnæmis og borgarastyrjaldar fyrir nokkrum árum. „SOS barnaþorpin eru þrjú í landinu, það nýjasta í Yamoussoukro,“ upplýsir hún. „Ef peningarnir okkar duga fyrir meira en skólanum fara þeir í að styðja við aðra starfsemi í þorpinu.“ Starfsstöðvar Marels eru víða um heim og þar eru alls konar viðburðir í gangi um næstu helgi.Börnin í Yamoussoukro fara í nýjan skóla eftir nokkra daga. „Í Hollandi verður Tour de Marel-dagurinn á sunnudaginn, þar verður hlaupið og hjólað. Hægt er að velja um að hjóla 105 og 170 kílómetra – þeir eru meira í hjólagírnum en við,“ segir Auðbjörg og segir Marel í Danmörku og Brasilíu líka vera að skipuleggja þrekraunir fyrir sig. Samhliða þessum viðburði safni fyrirtækið áheitum inni á www.tourdemarel.com. En hvað ætlar Auðbjörg sjálf að afreka, ef allt gengur samkvæmt áætlun? „Ég ætla að reyna að ná 15 hringjum, samtals 75 kílómetrum, og mun hlaupa þrjá til fjóra af þeim sjálf en svo ætla ég að fá aðstoð frá fjölskyldu minni við hina hringina. Ég æfi hlaup reglulega allt árið um kring en hef síðastliðnar tvær vikur æft sérstaklega fyrir þetta.“
Mest lesið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Fleiri fréttir Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Sjá meira