Heldur fyrirlestur í höfuðstöðvum Google 5. september 2014 19:00 Gunnar Karl Gíslason kynnir bókina vestanhafs á næstunni. Meðal annars verður hann með fyrirlestur í höfuðstöðvum Google. Vísir/Stefán
Þetta var skemmtileg en gríðarlega mikil vinna. Sérstaklega var gaman að kynnast landinu og öllum því góða fólki sem býr til þetta frábæra hráefni,“ segir Gunnar Karl Gíslason, matreiðslumeistari sem gefur út sína fyrstu matreiðslubók, North: The New Nordic Cuisine of Iceland, á næstu dögum. Gunnar Karl er löngu orðið þekkt nafn en hann rekur meðal annars Dill Restaurant ásamt því að búa til matseðlana fyrir Sæmund í sparifötunum á Kexi Hosteli og á veitingastaðnum við Hverfisgötu. Gunnar segist lengi hafa gengið með bókina í maganum en það var ekki fyrr en hann hitti matreiðslubókarhöfundinn Jody Eddy að boltinn fór að rúlla. Þau byrjuðu á að láta umboðsmenn fara með prufukafla milli forlaga vestanhafs sem voru hrifin og á endanum hafði Ten Speed Press í Kaliforníu vinninginn. „Við höldum á mánudaginn út til að hefja smá kynningartúr um Bandaríkin og byrjum á fyrirlestri í höfuðstöðvum Google sem er mjög spennandi.“ Bókin er umfangsmikil þar sem bæði eru í henni uppskriftir, viðtöl við birgja úti um allt land og ljósmyndir. „Mig langaði að gefa þeim sem sjá okkur fyrir hráefninu í uppskriftunum orðið þar sem þau eru svo stór hluti af útkomunni. Jody sér um að taka þau viðtöl og svo er íslenska landslagið endalaus uppspretta hugmynda. Uppskriftirnar eru svo mínar af Dillinu þar sem má finna til dæmis taðreykta bleikju sem er færð í nútímalegan búning,“ segir Gunnar Karl sem þvertekur fyrir að hann sé að færa sig alfarið yfir í bókaútgáfu um heiminn enda nýtur hann þess að standa í eldhúsinu. Bókin verður fáanleg frá og með 9. september og hefur þegar fengið lofsamlega umfjöllun í Food & Wine Magazine, Tasting Table, Eater, Food Arts og The Martha Stewart Show.
Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Frændinn sem braut á henni gengur enn laus Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fleiri fréttir Frændinn sem braut á henni gengur enn laus Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Sjá meira