Allt frá ljúfum tónum yfir í grín hjá Jónínu Ara Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 5. september 2014 18:30 Söngkona og lagasmiður Jónína heldur sína fyrstu stóru tónleika hér á landi í Salnum á morgun klukkan 20. Fréttablaðið/Valli „
Þetta eru fyrstu stóru tónleikarnir sem ég held hér heima og með þessum líka snilldar tónlistarmönnum sem munu deila sviðinu með mér. Þetta verður svakalega gaman, það er engin spurning,“ segir Jónína Aradóttir söngkona um tónleikana í Salnum annað kvöld klukkan 20. Hún flokkar stíl sinn undir þjóðlagatónlist, popp og rokk með vott af blúsi. „Þetta er allt frá fallegum, ljúfum tónum yfir í léttleika og grín,“ segir hún glaðlega. Jónína semur bæði texta og tónlist sjálf og kveðst oft sækja innblástur til mikilfenglegra æskustöðva sinna í Öræfum. Síðustu tvö sumur hefur hún starfað við ferðaþjónustu á Jökulsárlóni hjá Ice Lagoon ehf. og lætur ekki strákana eina um að stjórna bátunum heldur er líka siglari sjálf. Eftir að Jónína vann trúbadorakeppni Rásar 2 árið 2003 ákvað hún að fara í tónlistarnám og nam meðal annars við tónlistarskólann Musicians Institute í Los Angeles í þrjú ár. Hún fór í sjö vikna tónleikatúr um vesturhluta Bandaríkjanna fyrr á þessu ári og þó þetta séu hennar fyrstu tónleikar í stórum tónleikasal á Íslandi hefur hún komið fram hér á landi, í Danmörku og Bandaríkjunum. Meðal staða sem hún hefur sungið á má nefna House of Blues og Hard Rock Café í Hollywod. Jónína gaf út smáskífu 2013 í LA með fimm lögum. Eitt þeirra, Into the Water, var valið á safndisk sem kemur út í Bandaríkjunum í lok þessa árs, til styrktar Global Women's Empowerment Network. Með Jónínu verður sex manna sveit í Salnum. Hana skipa Árni Steingrímsson, gítar, Björn Erlingsson, bassi, Hrafnhildur Ýr Vilbergsdóttir, bakraddir, Sigfús Óttarsson, trommur, Jósep Gíslason, píanó og Gunnþóra Halla Guðmundsdóttir, selló.
Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Osaka best klædd á Wimbledon Tíska og hönnun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira