Ekki bara sport fyrir vandræðaunglinga 4. september 2014 09:00 Segja ekki hvaða verkfræðistofu sem er geta hannað og byggt alvöru hjólabrettagarð. Vísir/Pjetur „
Brettið tók mig út úr mínu hverfi þangað sem eitthvað áhugavert var að gerast, ég hefði til dæmis aldrei farið út í tónlistina ef ég hefði ekki kynnst fólkinu í kringum hjólabrettamenninguna. Ég fann mig aldrei í hópíþróttum. Svo prófaði ég að fara á hjólabretti og fann að ég fékk þessa útrás sem ég þurfti,“ segir Ársæll Þór Ingvason, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Intro Beats, sem berst fyrir því að borgin smíði alvöru „park“ í fyrirhuguðu frístundasvæði í Gufunesbæ undir hjólabrettaiðkun, BMX, hlaupahjól og línuskauta. Alexander Kárason, stofnandi Jaðaríþróttafélagsins, hefur unnið að því með Ársæli að fá erlenda fagmenn til þess að teikna upp hjólabrettaaðstöðu á reit í Gufunesi. „Það er svo mikilvægt að svona fari ekki í gegnum hvaða verkfræðistofu sem er. Skeitarar þurfa að hafa eitthvað um málið að segja því þeir vita hvernig aðstaðan á að vera svo hún sé sem best. Annað er peningaeyðsla,“ bætir Alexander við, betur þekktur sem Lexi. „Borgin nálgaðist okkur í fyrstu til þess að vinna þessa grunnvinnu sem við höfum nú skilað og fengið teikningar af fullmótuðu svæði, svona teikningar kosta milljónir. Nú viljum við bara sjá þetta verða að veruleika,“ segir Intro Beats. Lexi segir Íslendinga vera um 10 til 15 árum á eftir nágrannalöndunum þegar kemur að hjólabrettamenningu. „Þú sérð það að þetta hefur verið gert alls staðar, til dæmis í Nörrebro í Kaupmannahöfn og í Grænlandi bjuggu þeir nýlega til aðstöðu sem er algjörlega til fyrirmyndar og kemur notendum og iðkendum á næsta stig. Eins og þróun á að vera. Í dag er það þannig að Íslendingar fara út að keppa því það eru engin svæði til að æfa sig hér heima. Við eigum helling af fólki með mikla hæfileika en við erum að hamla því með því að bjóða upp á takmörkuð svæði og skyndilausnir.“ Þeir félagarnir segja báðir að hjólabrettaiðkun sé uppbyggileg. „Þetta er ekki bara eitthvað sport fyrir vandræðaunglinga. Þetta er félagslegt, þetta er góð hreyfing og gott fyrir þá sem hafa áhuga á. En við viljum þá líka hafa þetta almennilegt þannig að foreldrar geti vitað af börnunum sínum öruggum á vel lýstu og vel hönnuðu svæði,“ segir Intro Beats og Lexi tekur í sama streng. „Það þarf að fara að veita jaðaríþróttum almennt miklu meiri athygli. Við erum nýbúnir að stofna þessa deild í félaginu sem er Hjólabrettadeild Reykjavíkur en við viljum auka veg allra jaðaríþrótta. Við þurfum að athuga að einn af okkar hæst launuðu atvinnumönnum er Halldór Helgason snjóbrettakappi. Hann stundar og æfir svona íþrótt, sem við köllum íþrótt þó að ÍSÍ sé ekki sammála. Við viljum bara að það sé til alvöru aðstaða til að stunda þessar íþróttir eins og aðrar.“
Mest lesið Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Menning Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Lífið Minnist föður síns með verðmætu verkefni Tíska og hönnun Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Lífið Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Lífið Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Lífið Naglbíts-barn á leiðinni Lífið Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Gagnrýni Fyrsti leikur Vitar Games fær góðar undirtektir Leikjavísir Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Tónlist Fleiri fréttir Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Oddvitaáskorunin: Ætlaði sér að verða næsti Beckham Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Oddvitaáskorunin: Dreymdi um að verða veðurfræðingur Oddvitaáskorunin: Gildran betri en Kaleo Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Oddvitaáskorunin: Ennþá svekkt með úrslit Eurovision 2010 Sjá meira