Stingur sér á bólakaf í leiklistina Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 2. september 2014 09:00 Ragnheiður Ragnarsdóttir sunddrottning hefur nýtt líf í borg englanna Vísir/Stefán „
Ég ákvað að skrá mig bara í stutt nám til að byrja með til að athuga hvort þessi skóli henti mér. Námskeiðið í haust er að byrja núna a mánudaginn næsta og því lýkur í nóvember,?“ segir sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir. Hún flutti í síðustu viku til Los Angeles þar sem hún hyggst stunda nám við New York Film Academy. Þar ætlar Ragnheiður, eða Ragga eins og hún er oftast kölluð, að taka námskeið í Acting for film eða kvikmyndaleik. Aðspurð segist Ragnheiður ætla að byrja á þessu námskeiði og sjá hvernig henni lýst á borgina. Hún reiknar með því að koma heim um jólin en fara svo aftur út. Áhuginn fyrir því að læra leiklist kviknaði fyrir nokkrum árum, en ekki gafst tími til þess að sinna þeim draumi þá, þar sem sundið átti hug hennar allan. Ragnheiður á að baki glæstan feril sem sundkona en hún var aðeins 19 ára gömul þegar keppti á Ólympíuleikunum 2004, yngst íslenskra sundkvenna og aftur á leikunum árið 2008. Ragnheiður fór út ásamt eiginmanni sínum Atla Bjarnasyni,viðskiptafræðing og athafnamanni og syni þeirra Breka, en Ragnheiður og Atli gengu í hjónaband þann 15.júní 2013 við fallega athöfn í Dómkirkjunni. Á meðan dvöl þeirra stendur ætlar Atli að klára ritgerðina sína ásamt því að sinna fleiri verkefnum og hugsa um soninn. Annars verður nóg að gera hjá sundkonunni í vetur. „Svo eru rosa margir spenntir fyrir að koma í heimsókn svo við verðum lika bara upptekin í túristaleik með þeim sem ætla að kíkja i heimsókn, svona þegar ég verð ekki í skólanum?,“ segir Ragnheiður spennt fyrir komandi vetri og nýjum ævintýrum í borg englanna.
Mest lesið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Sjá meira