Voru valdir úr 900 manna hópi Gunnar Leó Pálsson skrifar 29. ágúst 2014 10:00 Þeir Baldvin Alan Thorarensen, Hjörtur Viðar Sigurðarson og Sölvi Viggósson Dýrfjörð bregða sér í líki Billy Elliots í vetur. vísir/anton brink „
Það má alveg segja að við séum alveg að verða ballettdansarar en við erum samt allir jafn góðir,“ segir hinn 13 ára gamli Baldvin Alan Thorarensen en hann mun ásamt, hinum 12 ára gamla Sölva Viggóssyni Dýrfjörð og hinum 11 ára gamla Hirti Viðari Sigurðarsyni leika ballettdansarann Billy Elliot í nýrri uppfærslu í Borgarleikhúsinu í vetur undir leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar. „Við erum búnir að vera í stífum ballettæfingum í sumar og erum orðnir mjög vöðvaðir og massaðir, þetta er ótrúlega erfitt,“ segir Hjörtur Viðar og hlær. Þeir hafa ekki eingöngu lært dans, því þeir hafa einnig lært leiklist, söng, fimleika og djassballett. „Þeir þoldu þetta allir mjög vel og eru að ná mjög góðum árangri,“ segir Bergur Þór leikstjóri. Strákarnir eiga það einnig sameiginlegt að koma úr samkvæmisdönsum. „Þetta eru allt öðru vísi hreyfingar en í samkvæmisdansinum því þar eru tveir að dansa saman en í ballettinum ertu bara einn,“ segir Baldvin. Í upphafi komu um 900 strákar í prufur til að fá að leika Billy Elliot og var þrisvar sinnum sigtað út en á endanum var sex piltum boðið í Billy-sumarskólann. Baldvin, Sölvi og Hjörtur urðu þó að lokum fyrir valinu sem Billyar Borgarleikhússins. Chantelle Carey og Elizabeth Greasley hafa að mestu séð um dansþjálfunina en þær hafa báðar unnið við hina ýmsu söngleiki í West End í London. Strákarnir þrír munu skipta sýningunum á milli sín. „Við munum skiptast á, ef einhver verður lasinn og svo er þetta líka bara mjög erfitt,“ segir Sölvi. Billy Elliot verður frumsýnt í mars en eru piltarnir ekkert stressaðir fyrir því að stíga á stóra sviðið í Borgarleikhúsinu? „Jú, við erum dálítið stressaðir en við hlökkum samt líka ótrúlega mikið til,“ segir Baldvin og þá bætir Hjörtur við: „Mig dreymdi einu sinni að ég væri að leika á sviði og ég fékk næstum því bara spennufall.“ Þeir hafa þó allir leikið í skólaleikritum áður. Billy Elliot er boxari að upplagi en strákarnir hafa þó ekki enn farið í boxþjálfun. „Við höfum ekki farið í boxkennslu enn þá en förum líklega í hana þegar nær dregur,“ segir Baldvin sem kannast þó aðeins við bardagaíþróttirnar eftir að hafa æft karate. Strákarnir munu æfa stíft fram að frumsýningu.
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira