Það geta allir skapað Baldvin Þormóðsson skrifar 28. ágúst 2014 09:37 Tom Kelley segir að fólk sé feimið við að koma með skapandi lausnir. mynd/einkasafn „
Við erum oft feimin við að koma með skapandi lausnir í ýmsum verkefnum,“ segir Karl Guðmundsson en hann stendur fyrir fyrirlestri Toms Kelley í Háskólabíói klukkan tólf í dag. Kelley er einn eigenda hönnunarskrifstofunnar IDEO og höfundur metsölubókarinnar The Art of Innovation en hann gaf nýlega út bókina Sköpunarkjarkur sem þýdd var á íslensku. „Það er almennt viðurkennt að nýsköpun og skapandi hugsun séu drifkrafturinn að baki árangri fyrirtækja og einna verðmætustu eiginleikar leiðtoga á okkar dögum,“ segir Karl. „Við þurfum ekki öll að vera listamenn en við getum verið skapandi lögfræðingar, læknar, framkvæmdastjórar eða sölumenn.“ Karl kynntist Kelley þegar hann bjó í San Francisco og starfaði hjá Ekso Bionics og segir það hafa verið tilviljun að þeir hafi kynnst á góðgerðarsamkomu. „Við vorum að kynna tækið okkar sem hjálpar mænusködduðum að ganga,“ segir Karl. „Honum leist svo vel á verkefnið að það endaði með því að við unnum verkefnið með IDEO og upp úr því hittumst við oft og hann talaði mikið um þessa bók sem ég var svo áhugasamur um.“ Í bókinni reynir höfundurinn að fá fólk til að verða meira skapandi einstaklingar og bókin inniheldur nokkrar reynslusögur fólks sem fer eftir aðferðum Kelleys. „Þegar ég kláraði að lesa hana þá fannst mér hún bara þurfa að koma út á íslensku og hótaði að þýða hana sjálfur ef forlagið myndi ekki finna góðan þýðanda,“ segir Karl og hlær. „Það er gríðarlegur áhugi fyrir þessu á Íslandi. Þetta á við fleiri en bara nýsköpunarfyrirtæki, það geta allir komið með meira skapandi lausnir í þeim verkefnum sem þeir sinna dagsdaglega.“ Eins og áður hefur komið fram fer fyrirlesturinn fram í Háskólabíói klukkan 12.00 og er hann haldinn í samstarfi við Hönnunarmiðstöðina, Símann og Háskóla Íslands en aðgangur er ókeypis.
Mest lesið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Sjá meira