Undirbúa forritara framtíðarinnar Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 26. ágúst 2014 10:15 Anna María segir yngstu börnin ljóma þegar þau sjá árangur af eigin sköpun í tölvum og að nemendur skólans eigi eftir að koma fjölskyldum sínum á óvart með tölvufærni og sköpunargáfu í leikjum og vefsíðum sem þau sjálf hanna og vinna. Frá vinstri: Ágústa Guðnadóttir forritunarkennari, Hólmfríður Guðjónsdóttir skólastjóri og Anna María Þorkelsdóttir verkefnastjóri. mynd/andri marínó
Við Hólabrekkuskóla í Efra-Breiðholti er börnum í 1. til 7. bekk kennd forritun og upplýsingatækni með áherslu á Word, Excel og notkun skýja. Markmiðið er að mæta auknum kröfum mennta- og háskóla um tölvukunnáttu og búa börnin undir störf framtíðar. „Við erum að undirbúa framtíðina og ætlum að gera börnin okkar fær í flestan sjó,“ segir Anna María Þorkelsdóttir, kennari og verkefnastjóri við Hólabrekkuskóla. Skólinn gengur nú í gegnum stórfelldar áherslubreytingar og stefnir hraðbyri að því skara fram úr í upplýsingatækni. „Kennarar Hólabrekkuskóla eru einstaklega opnir fyrir nýjungum og meðvitaðir um kröfur framtíðar gagnvart nemendum sínum. Þeir fengu það hlutskipti að hanna framtíðarskólann á starfsdegi kennara í byrjun árs og úr þeirri hönnunarsmiðju spruttu frábærar hugmyndir sem mörgum var hægt að hrinda strax í framkvæmd,“ upplýsir Anna María. Nú þegar hefja nemendur í 1. til 7. bekk nám í forritun og upplýsingatækni og í unglingadeild verður val um frekara nám í forritun. „Við byrjum á kennsluforritunum Scratch og Alice og notum hinar og þessar forritunarvefsíður eins og Code Academy og Code.org. Þegar upp er staðið munu börnin hafa lært alls kyns forritunarmál og áfram munum við efla tölvukunnáttu þeirra. Við leggjum einnig ríka áherslu á enn meira val fyrir unglingana og að þau geti tengt forritun og upplýsingatækni við námsgreinar sínar,“ segir Anna María. Í upplýsingatækni verður börnunum í Hólabrekkuskóla meðal annars kennt á Word, notkun tölvuskýja og Excel. „Við leggjum ríka áherslu á Excel því menntaskólar og háskólar gera æ meiri kröfur um kunnáttu nemenda sinna á Excel og það ætlum við að búa nemendur okkar undir.“ Getutengt nám og færni Í Hólabrekkuskóla eru hundrað spjaldtölvur notaðar á yngsta stigi og unglingastigi. „Í tölvuveri skólans læra börnin forritun og upplýsingatækni tvisvar í viku og þau yngstu nota spjaldtölvur í stöðvavinnu í byrjendalæsi. Markmið okkar er að auka sköpun og áhuga nemenda og efla tæknikunnáttu þeirra til framtíðar því það er staðreynd að það eru fá störf í framtíðinni sem munu ekki krefjast einhverrar forritunarkunnáttu.“ Nemendur Hólabrekkuskóla eru spenntir fyrir auknu tölvunámi og hefur formaður stjórnar foreldrafélagsins lýst yfir mikilli ánægju fyrir hönd foreldra yfir nýjum námsgreinum. „Við verðum með aðstoð fyrir kennara sem þess þurfa í upphafi námsins en þegar upp er staðið verða allir kennarar skólans orðnir færir upplýsingatæknikennarar,“ segir Anna María og hlakkar til skólaársins fram undan. „Við erum með fasta tíma í Fab Lab-smiðjunni fyrir nemendur 6. og 7. bekkjar og notum netnámssíðuna Moodle í námi og prófum unglinganna. Þá er í skólastarfinu mikið um nýjungar og verða verkefni skólans í völdum fögum getutengd í stað þess að vera árgangabundin. Þá fá klárir krakkar úr yngri stigum að vinna með eldri börnum á sama stigi og þeir sem þarfnast meiri undirbúnings að vinna með öðrum á sama stigi. Með því kýlum við ekki alla í gegnum námið á sama hraða.“
Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Sjá meira