Lífið

Mannbætandi heimspeki í spunalistinni

Nanna Elísa Jakobsdóttir og Ólöf Skaftadóttir skrifar
Þátttakendur í Haraldinum eru úr öllum áttum. Þeir skapa söguna og persónurnar í sameiningu.
Þátttakendur í Haraldinum eru úr öllum áttum. Þeir skapa söguna og persónurnar í sameiningu.
Spunahópurinn Haraldurinn frumsýnir sína fyrstu íslensku spunasýningu á Menningarnótt þann 23. ágúst næstkomandi.

Stöllurnar og leiklistarnemarnir Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir taka þátt í uppfærslunni.

„Dóra Jóhannsdóttir leikkona býr í New York þar sem hún rambaði inn á námskeið hjá leikhúsi sem heitir Upright Citizens Brigade (UCB) og kennir svokallaðan langspuna eða „long-form improv“. Henni fannst þetta svo ótrúlega skemmtilegt og var viss um að það væri pláss fyrir þessa týpu af leikhúsi hérna heima, þannig að hún byrjaði að halda námskeið á Íslandi þegar hún gat og nú hafa um það bil 150 manns farið á námskeiðin hjá henni,“ segir Vala.

Í fyrsta sinn á Íslandi

Spunaaðferðin sem um ræðir hefur verið grundvöllur fyrir fjölmargt hæfileikafólk úti í heimi sem allir þekkja líkt og Tinu Fey, Steve Carrell og Amy Poehler. „Svona leikhús hefur aldrei verið gert áður á Íslandi og það er sjúklega spennandi að sjá hvernig Íslendingar taka í þetta,“ segir Blær. 



Frumsýningin á Menningarnótt verður í Kassanum við Þjóðleikhúsið á milli 18.00 og 22.00 og aðgangur verður ókeypis. „Þetta verður eitthvað rosalegt,“ segir Blær. 

Snýst um að hlusta og vera jákvæður

Engin ákveðin hlutverk eru í spunahópnum fyrir utan að Dóra er kennarinn og leiðbeinir nemendunum. 

„Svo hjálpumst við líka öll að við að gera þetta að möguleika með því að redda húsnæði, skipuleggja æfingar og þess háttar. Mjög flatur strúktúr og allir vinir,“ útskýrir Blær. 

„Enda ekki annað hægt í Haraldinum því að við vitum aldrei hvaða sögu við erum að fara að segja eða hvaða persónur verða til. Við þurfum á öllum hópnum að halda því að við byggjum söguna saman,“ bætir Vala við.

„Og það er það sem er svo fallegt við spunann. Þetta snýst um að hlusta, taka áhættur, vera í núinu, styðja aðra og vera jákvæður. Það er mjög mannbætandi heimspeki á bak við þetta.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×