Mannbætandi heimspeki í spunalistinni Nanna Elísa Jakobsdóttir og Ólöf Skaftadóttir skrifar 11. ágúst 2014 10:00 Þátttakendur í Haraldinum eru úr öllum áttum. Þeir skapa söguna og persónurnar í sameiningu.
Spunahópurinn Haraldurinn frumsýnir sína fyrstu íslensku spunasýningu á Menningarnótt þann 23. ágúst næstkomandi. Stöllurnar og leiklistarnemarnir Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir taka þátt í uppfærslunni. „Dóra Jóhannsdóttir leikkona býr í New York þar sem hún rambaði inn á námskeið hjá leikhúsi sem heitir Upright Citizens Brigade (UCB) og kennir svokallaðan langspuna eða „long-form improv“. Henni fannst þetta svo ótrúlega skemmtilegt og var viss um að það væri pláss fyrir þessa týpu af leikhúsi hérna heima, þannig að hún byrjaði að halda námskeið á Íslandi þegar hún gat og nú hafa um það bil 150 manns farið á námskeiðin hjá henni,“ segir Vala.Í fyrsta sinn á Íslandi Spunaaðferðin sem um ræðir hefur verið grundvöllur fyrir fjölmargt hæfileikafólk úti í heimi sem allir þekkja líkt og Tinu Fey, Steve Carrell og Amy Poehler. „Svona leikhús hefur aldrei verið gert áður á Íslandi og það er sjúklega spennandi að sjá hvernig Íslendingar taka í þetta,“ segir Blær. Frumsýningin á Menningarnótt verður í Kassanum við Þjóðleikhúsið á milli 18.00 og 22.00 og aðgangur verður ókeypis. „Þetta verður eitthvað rosalegt,“ segir Blær. Snýst um að hlusta og vera jákvæður Engin ákveðin hlutverk eru í spunahópnum fyrir utan að Dóra er kennarinn og leiðbeinir nemendunum. „Svo hjálpumst við líka öll að við að gera þetta að möguleika með því að redda húsnæði, skipuleggja æfingar og þess háttar. Mjög flatur strúktúr og allir vinir,“ útskýrir Blær. „Enda ekki annað hægt í Haraldinum því að við vitum aldrei hvaða sögu við erum að fara að segja eða hvaða persónur verða til. Við þurfum á öllum hópnum að halda því að við byggjum söguna saman,“ bætir Vala við. „Og það er það sem er svo fallegt við spunann. Þetta snýst um að hlusta, taka áhættur, vera í núinu, styðja aðra og vera jákvæður. Það er mjög mannbætandi heimspeki á bak við þetta.“
Mest lesið Landsliðshetjur elta drauminn til Ólafsvíkur Lífið Bakslag í veikindi Valgeirs Lífið Staðalímyndir í sjávarútvegi: „Hvar er maðurinn þinn?“ Lífið Hvernig á að klæða sig fyrir körfuboltaleik? Tíska og hönnun „Hélt að við værum að trufla verðandi bónorð hjá öðrum“ Lífið Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Tónlist Sagði að hún kæmist aldrei á forsíðu Vogue Lífið Glæsileg í Cannes í sérsaumaðri íslenskri hönnun Tíska og hönnun Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Menning Rikki G og Valdís eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir Eitt fallegasta hús Reykjavíkur komið á sölu Sagði að hún kæmist aldrei á forsíðu Vogue Bakslag í veikindi Valgeirs Staðalímyndir í sjávarútvegi: „Hvar er maðurinn þinn?“ Landsliðshetjur elta drauminn til Ólafsvíkur Úr klikkaðri kynlífsþrá í alls enga Rikki G og Valdís eiga von á barni „Hélt að við værum að trufla verðandi bónorð hjá öðrum“ Vill Ísrael og Úkraínu úr Eurovision Stóra stundin hjá þeim Rebekku og Ásgeiri Hersir og Rósa greina frá kyninu „Allt annað að sjá einhvern sem var eins og ég“ „Ekki ætlunin að særa heldur hrista aðeins upp í umræðunni“ Heillandi heimili Hönnu Stínu Jónas Sen sakaður um derring og meinfýsni Arnar og Sigrún Heba selja glæsihús í Kópavogi Svanhildur Hólm fór holu í höggi Ástin blómstrar hjá Rósu Líf og Anahitu Væri til í fjörutíu eiginmenn og nokkra sykurpabba Biggi ekki lengur lögga Ásgeir og Hildur eiga von á stúlku Stefán Einar tók vel á því með Ísfélaginu Stjörnulífið: Bikiní dress vikunnar Ótrúlegustu atvik geta veitt innblástur Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Felix kveður Eurovision Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Sjá meira