Ótímabært sáðlát algengt vandamál 5. ágúst 2014 11:30 Vísir/Getty
SPURNING: Mig langar að spyrja þig út í eitt sem ég er að glíma við í kynlífi, of brátt sáðlát. Ég bara fæ það mjög fljótlega eftir að hann er kominn inn þannig að ég nýt ekki samfaranna. Eins líka ef ég fróa mér fæ ég það mjög fljótt. Er eitthvað sem ég get gert við þessu?Sigga DöggSvar: Ótímabært sáðlát er eitt algengasta kynlífsvandamál karla og er áætlað að það hrjái um allt að fjóra af hverjum tíu karlmönnum á einhverjum tímapunkti. Það sem ber þó að hafa í huga þegar rætt er um kynlífsvandamál, sérstaklega ótímabært sáðlát, er hvaða tímarammi viðkomandi skilgreinir sem ótímabært. Fyrir sumum gætu þetta verið tvær mínútur en fyrir öðrum tólf mínútur. Ég var með einn nemanda í fræðslu hjá mér sem hafði áhyggjur af því að geta ekki stundað samfarir nema í tuttugu og tvær mínútur. Þegar ég benti viðkomandi á að meðaltími samfara væru fimm til sjö mínútur þá kom annað hljóð í strokkinn. Það er nefnilega líka hægt að upplifa erfiðleika við það að fá fullnægingu og beinlínis endast of lengi. Þá er gott að hafa það hugfast að þessar tímasetningar þarf ávallt að meta samhliða bólfélaganum og að hægt er að fá fullnægingu án þess að fá sáðlát og öfugt. Kynlífsvandamál eru yfirleitt skilgreind út frá því að þau valdi viðkomandi áhyggjum og hafi áhrif á kynlíf hans. Þá er miðað við að sáðlát verði við mjög litla kynferðislega örvun og að sáðlát verði áður en limur er settur inn í leggöng eða rass, eða fljótlega eftir að hann fer inn. Þó ber að hafa í huga að flestir geta lent í þessu á einhverjum tímapunkti í kynlífi sínu, hvort sem er með bólfélaga eða í sjálfsfróun, en þættir eins og þreyta, streita, kynlöngun, aðstæður, heilsa og aldur geta haft áhrif á tíma sáðláts. Það er hægt að þjálfa hjá sér seinkun sáðláts með ýmsum aðferðum. Byrjaðu á því að hægja á andardrættinum og einbeita þér að því að anda hægar og dýpra. Þú getur einnig æft þig í start-stopp-tækninni. Þú örvar typpið þangað til þú ert alveg við það að fá fullnægingu þá hættirðu og bíður í um mínútu. Svo byrjarðu aftur og endurtekur þetta fjórum til fimm sinnum. Í stað þess að stoppa getur þú einnig prófað að grípa þéttingsfast neðarlega um typpið rétt áður en þú færð fullnægingu. Þegar þú hefur náð stjórn á þessu og getur fundið þegar þú ert við það að fá fullnægingu og stoppað þig af, þá getur þú notað þessa tækni í kynlífi með annarri manneskju. Það er ekki mælt með sleipiefnum eða kremum með deyfilyfjum því slíkt getur dregið úr kynferðislegri næmni og unaði, bæði fyrir þig og bólfélagann. Þú getur hins vegar prófað að nota smokk með slíkri deyfingu. Það ætti ekki að hafa áhrif á bólfélagann og þú getur kannað hvort það henti þér. Einnig eru til sérstök lyf sem geta aðstoðað en slíkt þarftu að fá hjá lækni. Sökum þess að margir þættir geta haft áhrif á vandamál í kynlífi þá gæti verið ráðlegt að kíkja í kynlífsráðgjöf og spjalla smá ef fyrrgreind tækni virkar ekki. Gangi þér vel.
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira