Mikilvægt að ganga hægt um gleðinnar dyr um verslunarmannahelgina 30. júlí 2014 12:30
Nú styttist óðum í verslunarmannahelgina en helgin er þekkt fyrir rosalegan fjölda útihátíða. Við báðum því nokkra einstaklinga að viðra skoðanir sínar á útihátíðum og taka afstöðu til þeirra. Kolfinna Kristófersdóttir fyrirsæta.Vísir/ValliVildi óska að minna væri um ofbeldi „Ég er náttúrulega Vestmannaeyingur og hef því farið ansi oft á Þjóðhátíð,“ segir fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir en hún segist líka vilja að hún hefði aldrei farið á neina aðra útihátíð en Þjóðhátíð yfir verslunarmannahelgina. „Ég held samt að upplifunin af Þjóðhátíð sé allt öðruvísi ef þú ert frá Eyjum,“ segir hún. „Öll fjölskyldan mín er þarna og allir gömlu vinirnir þannig að þetta er allt annað en fyrir Reykvíkinga.“ Kolfinna hefur því virkilega gaman af Þjóðhátíðinni og segir að Vestmannaeyjar séu rosalega fallegur staður en hún hefur þó eitt út á hátíðina að setja. „Ég vildi óska þess að það væri ekki svona mikið ofbeldi á hátíðinni.“Elliði Vignisson bæjarstjóri.Gangið hægt um gleðinnar dyr „Ég er hlynntur öllum þeim heilbrigðu skemmtunum og útihátíðum sem boðið er upp á,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, en sjálfur hefur hann 46 ára reynslu af Þjóðhátíð. „Mín reynsla er sú að það sem skiptir allra mestu máli er að bera ábyrgð á sjálfum sér og sínum. Það hvernig við göngum fram hefur áhrif á okkar velferð og velferð annarra,“ segir bæjarstjórinn. „Fyrir þá sem eru gestkomandi skiptir miklu máli að vera undirbúnir, að kynna sér út á hvað hátíðin gengur og virða hefðir heimamanna. Svo á auðvitað að ganga hægt um gleðinnar dyr.“Ágústa Eva Erlendsdóttir.Vísir/ValliMætir í kraftgallanum „Ég er engan veginn útihátíðartýpa,“ segir leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir. „Þar sem ég er alin upp er svo heitt að ég get eiginlega ekki verið í miklum kulda,“ segir hún og hlær. „Ég get því ekki sofið í tjaldi og í þau fáu skipti sem ég hef reynt þá hef ég annaðhvort vakið alla nóttina, sofið inni í bíl eða farið grátandi heim.“ Ágústa Eva segir það ekki á dagskránni að tjalda um verslunarmannahelgina heldur ætlar hún að halda sig heima í hlýjunni með fjölskyldunni. Ef hún myndi þó fara eitthvert þá segir hún að Þjóðhátíð í Eyjum yrði líklegast fyrir valinu. „Kærastinn minn er ættaður þaðan og ég hef aldrei farið þannig að ég myndi örugglega mæta þangað og taka þetta alla leið,“ segir leikkonan hlæjandi. „Alveg í þremur kraftgöllum með landa í vasanum og sofa ekki neitt.“María Rut Kristinsdóttir.Vísir/ValliVill vera á Vestfjörðum „Ég fór á Mýrarboltann á Ísafirði en ég gisti alltaf í heimahúsi, ég er ekki mikið fyrir svona tjaldferðalög,“ segir María Rut Kristinsdóttir. „Ég hef allavega aldrei farið á Þjóðhátíð, ég er alin upp á Vestfjörðum og þaðan er bara svo langt að fara á Þjóðhátíð,“ segir hún og hlær. „Ég er líka með svona sjúkdóm, ég á mjög erfitt með að breyta til, þannig að það gæti alveg verið partur af því að ég vil alltaf hafa allt í föstum skorðum.“ María Rut segist vera reynslulítil þegar kemur að útihátíðum en hún fór samt á hátíðina Halló Akureyri þegar hún var sautján ára. „Það var brilljant en ég hef eiginlega ekki tjaldað síðan,“ segir hún. „Ég nenni bara ekki að lenda í því að tjaldið mitt rifni niður, þá verð ég svo vonsvikin og leið.“Eiríkur Björn Björgvinsson.Vísir/VilhelmMikilvægt að fara aldrei yfir strikið „Ég er almennt jákvæður gagnvart útihátíðum enda snúast þær um að fólk eigi að skemmta sér saman,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, en hann hefur góða reynslu af útihátíðum og þá sérstaklega á Akureyri þar sem hann hefur starfað sem bæjarstjóri frá árinu 2010. „Það sem skiptir höfuðmáli er að fólk taki tillit hvert til annars, ekki síst til þeirra sem dragast óvart inn í útihátíðarstemninguna eins og margir íbúar Akureyrar.“ Eiríkur Björn segir að útihátíðir eigi sér ríka hefð á Íslandi enda hafa margar íslenskar útihátíðir verið haldnar í tugi ára. „Það er þó mikilvægt að stilla öllu í hóf og fara aldrei yfir strikið.“
Tengdar fréttir Hvað gera verslunarmenn um verslunarmannahelgi? Blaðamaður Fréttablaðsins tók sig til og hringdi í nokkra hressa verslunarmenn og forvitnaðist um hvernig helgin, sem er jú tileinkuð þeim, færi fram og hvað þeir ætluðu sér að gera yfir fyrrnefnda helgi. 28. júlí 2014 13:30 Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Sjá meira
Hvað gera verslunarmenn um verslunarmannahelgi? Blaðamaður Fréttablaðsins tók sig til og hringdi í nokkra hressa verslunarmenn og forvitnaðist um hvernig helgin, sem er jú tileinkuð þeim, færi fram og hvað þeir ætluðu sér að gera yfir fyrrnefnda helgi. 28. júlí 2014 13:30